Fjölskyldufjör í Öskjuhlíð Marín Manda skrifar 27. júní 2014 09:00 Lára G. Sigurðardóttir og Sigríður A. Sigurðardóttir sjá um skipulagningu dagsins.
Höfundar bókanna Útivist og afþreying fyrir börn og Útilífsbók barnanna hvetja fjölskyldur til að taka þátt í þéttri og skemmtilegri dagskrá á sunnudaginn. „Tíminn er svo dýrmætur og mikilvægt að nýta hann vel með börnunum. Þegar við erum saman úti í náttúrunni er auðveldara að veita þeim óskipta athygli og láta þau finna að maður er ekki einungis á staðnum heldur einnig til staðar,“ segir Sigríður A. Sigurðardóttir sem sér um skipulagningu Fjölskyldudagsins ásamt þeim Láru G. Sigurðardóttur, Pálínu Ó. Hraundal og Vilborgu A. Gissurardóttur. Þær eru höfundar bókanna Útivist og afþreying fyrir börn og Útilífsbók barnanna.Fjölskyldudagurinn fer fram sunnudaginn 29. júní kl. 13–16 í Öskjuhlíð við Perluna. Þennan dag verður að finna spennandi uppákomur fyrir alla fjölskylduna en fjölmargir koma að ævintýralegum viðburðum dagsins. Rathlaupafélagið Hekla býður gestum í rathlaup og Ævar vísindamaður mætir og sýnir gestum vísindatilraunir. Færni til framtíðar verður með hópleiki og Hjólafærni setur upp hjólaþraut. Jógahjartað verður með jóga fyrir fjölskylduna í fallegum lundi og einnig verður ljósmyndakeppni með veglegum vinningum. Upplifunarleiðangrar verða í boði Ferðafélags barnanna og Hálendisferðir flétta saman göngu og myndlist. Spunaspil og skylmingar eru einnig á dagskrá. „Það er ómetanlegt fyrir börnin að við sáum góðum fræjum fyrir framtíðina og stundum heilbrigt líferni með þeim. Þessi fræ sem við sáum fyrir börnin verða kannski ekki að blómi strax en verða það alveg örugglega einn daginn,“ segir Lára G. Sigurðardóttir. Dagskrána má finna undir Facebook-síðum bókanna „Útivist og afþreying fyrir börn – Reykjavík og nágrenni“ og „Útilífsbók barnanna“ ásamt heimasíðunni www.fyrirborn.is.Öskjuhlíðin býður upp á margt skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna.
Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Glatkistunni lokað Menning Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Myndaveisla frá Hafnarfirði - Bylgjulestin 2025 Lífið samstarf „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Sjá meira