Íslenska í japönsku sjónvarpi Gunnar Leó Pálsson skrifar 26. júní 2014 09:00 Arnór Dan Arnarson syngur tónlist í nýrri japanskri þáttaröð. vísir/valli „
Á tónleikaferðalagi með Óla Arnalds í Japan á árinu, fór ég á fund með Íslandsvininum Yuka Ogura, sem er nokkurs konar framleiðslustjóri þáttanna, því aðstandendur þáttanna vildu fá mig til að syngja hluta tónlistarinnar,“ segir tónlistarmaðurinn Arnór Dan Arnarson. Hann syngur þrjú lög í nýrri japanskri teiknimyndaþáttaröð sem ber nafnið Terror in Resonance. Um er að ræða nýja teiknimyndaþáttaröð sem er nokkurs konar spennutryllir með yfirnáttúrulegu ívafi fyrir börn og fullorðna. „Þau vildu hafa íslenska tungumálið í þættinum. Íslenska málið og íslensk tónlist hefur verið þeim innblástur,“ segir Arnór Dan og hlær. Hann er þó ekki eini Íslendingurinn sem kemur að þáttunum því fleiri íslenskir tónlistarmenn leggja hönd á plóg. Birgir Jón Birgisson sá um upptökurnar sem fram fóru í stúdíóinu Sundlauginni og Bragi Valdimar Skúlason bjó til íslenska texta. Magnús Trygvason Eliassen spilar á trommur, Andri Ólafsson á bassa, Hilmar Jensson á gítar og þá stjórnar Borgar Magnússon strengjasveit. Þættirnir fara í sýningu í júlí og verða sýndir á einni vinsælustu sjónvarpsstöð í Japan, Fuji TV og því ljóst að allmargar margar milljónir manna muni sjá og heyra í íslenska tónlistarfólkinu. „Ég hef alltaf elskað anima-teiknimyndir þannig að þetta er mikill heiður fyrir mig og því svo sannarlega æskudraumur að rætast.“ Leikstjóri þáttanna Shinichir Watanabe er þekktur fyrir leikstjórn þátta á borð við Cowboy Bebop and Samurai Champloo. Höfundar tónlistar er Yoko Kanno en hún samdi tónlistina fyrir þætti á borð við Darker than Black, Macross Plus, Cowboy Bebop, Ghost in the Shell: Stand Alone Complex ásamt fyrir hina ýmsu tölvuleiki og kvikmyndir.Kazuto Nakazawa teiknar þættina. Hann teiknaði teiknimyndahluta í kvikmyndinni Kill Bill Volume 1 og einnig tónlistarmyndband Linkin Park við lagið Breaking the Habit en það má sjá hér að neðan.Hér má kynna sér þættina og tónlistina frekar.
Mest lesið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Fleiri fréttir „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Sjá meira