„Þetta er algjör fjölskylda“ Baldvin Þormóðsson skrifar 26. júní 2014 12:30 Kolbrún Eva mun rifja upp gamla takta með hljómsveitinni Myst en hljómsveitin hefur ekki komið fram í nokkur ár. „
Við erum svona að rífa okkur upp, við vorum svo dugleg einu sinni,“ segir Kolbrún Eva Viktorsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Myst sem kemur fram á tónleikum í kvöld klukkan 21.00 á Café Deluxe í Hafnarfirði. „Við gáfum út diskinn Take Me with You árið 2006 sem fékk mjög góða spilun,“ segir söngkonan. „En síðan fór maður bara í að eignast fleiri börn og við erum núna að halda fyrstu tónleikana í nokkur ár,“ segir Kolbrún og hlær. Hljómsveitin ætlar sér ekki að fara rólega af stað heldur er hún nýkomin úr hljóðveri þar sem hún tók upp nýtt lag með aðstoð Jóns Ólafssonar tónlistarmanns. „Hann er alveg ótrúlegur,“ segir Kolbrún. „Við vorum að fá lagið í hendurnar og ætlum að herja á útvarpsstöðvarnar og athuga hvort við fáum ekki einhverja spilun.“ Meðlimir Myst eru ekki af verri endanum en ásamt Kolbrúnu eru í sveitinni maðurinn hennar, Haraldur Gunnar Ásmundsson, bróðir hennar, Sigurvin Sindri Viktorsson, frændi hennar, Gunnar Leó Pálsson, og æskuvinur Sigurvins, Hermann Albert Jónsson. „Þetta er algjör fjölskylda,“ segir söngkonan. „Það er æðislegt að vera á tónleikaferðalagi, það geta allir gist saman hjá ættingjum og svona. Mjög þægilegt,“ segir Kolbrún og bætir því við að þrátt fyrir náin tengsl hafi aldrei komið til árekstra í hljómsveitarstarfinu. ,,Við erum svo róleg öll, síðan er ekkert hægt að ljúga að þú sért að fara að gera eitthvað ef það er æfing því það vita allir hvað þú ert að gera,“ segir söngkonan og hlær.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sjá meira