„Ég fer á bak nánast alla daga“ Baldvin Þormóðsson skrifar 18. júní 2014 09:54 Arnar Máni er talinn vera einn efnilegasti knapi landsins. vísir/arnþór „
Það gekk bara mjög vel, gat stundum verið smá skrítið en mjög skemmtilegt,“ segir hinn tólf ára knapi Arnar Máni Sigurjónsson en honum verður fylgt eftir af tökuliði Kukls á Landsmót hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 30. júní til 6. júlí. „Það var bara hringt í pabba og hann fenginn til að fá mig í þetta,“ segir ungi knapinn en nú þegar hafa verið gerðir sjónvarpsþættir um undirbúning hans og undankeppni. Síðan verða einnig gerðir þættir um þátttöku hans í keppninni sjálfri og þeir klipptir jafnóðum og sýndir í Sjónvarpi Símans. Arnar Máni var í hestamennsku þegar hann var yngri en hann segir áhugann hafa kviknað fyrir alvöru á landsmóti hestamanna árið 2011. Aðspurður hvort hann sé stressaður fyrir landsmótið segir hann stressið ekki vera byrjað að segja til sín. „Ég fer á bak nánast alla daga,“ segir Arnar, „en ekki með hestinn sem ég ætla með á landsmót, hann fær að hvíla sig.“ Þrátt fyrir ungan aldur þykir Arnar Máni vera með efnilegustu knöpum á landsmótinu. Hann keppir nú á sínu öðru landsmóti og gerði sér lítið fyrir á dögunum þegar hann vann úrtökumótið hjá Fáki á hestinum Hlekk frá Bjarnarnesi með einkunnina 8,65, sem verður að teljast ansi gott. Eins og áður hefur komið fram geta áhugasamir fylgst með unga knapanum á Sjónvarpi Símans á sérstakri Landsmótsrás þar sem verða beinar sjónvarpsútsendingar frá Landsmótinu ásamt tuttugu mínútna sjónvarpsþáttum um Arnar Mána.
Mest lesið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Svandís í ritstjórastól Menning Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira