Gekk starraunganum Skugga í móðurstað Kristjana Arnarsdóttir skrifar 17. júní 2014 09:30 Sóley, sem starfar sem vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, hefur þurft að hafa Skugga sér við hlið í vinnunni en unginn þarf að éta á 20 mínútna fresti. „
Hann var pínulítill þegar við fundum hann en hann dafnar ótrúlega vel,“ segir Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni, en dóttir hennar fann agnarlítinn starraunga í garðinum heima í síðustu viku. Sóley segist hafa leitað á náðir Facebook til þess að fá ráðleggingar um það hvernig best væri að hugsa um ungann. „Fólk var ekkert sérlega bjartsýnt um að unginn myndi hafa þetta af, hann var svo lítill. En mér var bent á frábæra heimasíðu, starlingtalk.com, þar sem hægt er að finna allar upplýsingar um það hvað maður eigi að gera ef maður finnur starraunga,“ segir Sóley, sem telur að heimiliskötturinn Dimma hafi fundið hann og komið með heim. „Kötturinn tekur stundum mýs eða fugla með sér heim til að leika með, hann meiðir dýrin samt ekki. Unginn var því ekkert særður þegar við fundum hann.“Unginn var ekki stór þegar hann fannst og í raun ótrúlegt að hann skyldi ná að braggast.Sóley gerir ráð fyrir því að unginn, sem hún hefur nefnt Skugga, hafi ekki verið meira en þriggja daga þegar hann fannst. „Inni á heimasíðunni getur maður séð þær breytingar sem ungarnir taka dag frá degi. Nú er hann farinn að standa í lappirnar og opna augun en það gerist eftir sjö daga. Ég gat því reiknað mig aftur í tímann og fundið út aldurinn.“ Sóley segir að starrar séu sérlega gáfaðir en fái oft á tíðum misjafnt umtal. „Starrar eru mjög hreinlegir fuglar og fá yfirleitt ekki flær. Þeir geta lært að tala og geta hermt eftir öllum hljóðum.“ Skuggi hefur fylgt Sóleyju í vinnuna síðustu daga en hún þarf að gefa honum að éta á 20 mínútna fresti. „Hann fær blautan kattamat og barnamat. Það var líka mælt með því að gefa honum harðsoðin egg enda nóg af næringarefnum í eggjunum,“ segir Sóley en samstarfsfélagar hennar í Ölgerðinni hafa tekið Skugga vel. „Þeim finnst þetta bara skemmtilegt. Ég var samt alveg nógu skrýtin fyrir svo þetta er kannski ekki að hjálpa,“ segir Sóley hress að lokum.
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira