Held þetta sé eina torg landsins með gosbrunni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. júní 2014 10:00 Regína segir matvörur frá Vesturlandi vera í aðalhlutverki á matarmarkaðinum en arabíska rétti og ávaxtatré fylgja með. Mynd/Ágústa Friðriksdóttir „
Það var 16. júní árið 1864 sem verslunarstaðurinn hér við Lambhúsasund á Skipaskaga fékk löggild verslunarréttindi með konungsbréfi frá Kristjáni níunda Danakonugi og það hafði mikla þýðingu fyrir þróun bæjarins. Við höldum upp á þetta hundrað og fimmtíu ára afmæli í dag með því að opna nýjan matar-og antikmarkað við Akratorgið sem er orðið alveg glæsilegt eftir gagngerar endurbætur. Ég held þetta sé eina torg landsins með gosbrunni,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness kampakát. Hún segir einnig hafa verið gefið út verslunarkort með yfirliti yfir allar búðirnar í bænum, þannig að fólk geti þrætt þær, skoðað vöruúrvalið og gert góð kaup á Skaganum. Akratorgið verður vígt formlega klukkan hálf þrjú í dag en antik- og matarmarkaðurinn verður opnaður klukkan eitt. Hann verður aðallega innan dyra en ef veður leyfir færist hluti hans út að sögn Regínu. Hún segir matvörur frá Vesturlandi í aðalhlutverki. „Þar verða til dæmis kjötvörur beint frá býli, ópilluð rækja og annað fiskmeti, broddmjólk, skyrkonfekt og ís. Einnig verða ávaxtatré til sölu frá okkar landsþekkta ræktanda, Jóni Guðmundssyni,“ segir hún og bætir við. „Hér í bænum er innflutningsfyrirtæki með lífrænar vöur, olíur, sósur og fleira og það er með bás á markaðinum og hér á Akranesi búa margar konur af arabískum uppruna og þær munu elda og selja girnilega arabíska rétti.“ En hvað um antikvörurnar? „Já, sumir mundu kannski kalla þetta „retró“ en munir frá 1970 eru auðvitað orðin antik. Hér í bænum eru hjón sem heita Krisbjörg og Björgvin sem hafa verið með antikmarkað í bílskúr sínum einu sinni í mánuði og þau færa hluta hans þarna inn. Björgvin hefur líka safnað yfir 500 róbótum síðan árið 1950 og á mjög skemmtilegt safn af þeim sem hann opnar sýningu á í dag.“ Árið 1864 bjuggu um 300 manns á Skaganum öllum. Staðurinn fékk lögskipuð verslunarréttindi það ár eftir áratuga baráttu heimamanna og þingmanna þeirra, svo sem Hannesar Stephensen og Arnljóts Ólafssonar. Þó dróst til 1872 að fastakaupmaður settist að á Akranesi. Hann hét Þorsteinn Guðmundsson og verslaði í umboði Thomsensverslunar í Reykjavík. Smám saman bættust fleiri í hópinn og fimm fyrstu kaupmennirnir reistu allir verslanir við Lambhúsasund.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira