Litla sæta uglan toppar allar gjafirnar Marín Manda skrifar 14. júní 2014 09:00 Birta Björnsdóttir ásamt liltu uglunni. Myndir/ Úr einkasafni „
Ég er dýrasjúk og hef alltaf verið. Er hún ekki sæt? Hún er með loðin augnlok og löng augnhár. Jeminn eini sko,“ segir Birta Björnsdóttir fatahönnuður hlæjandi þegar blaðamaður nær tali af henni í Barcelona. Hin mánaðar gamla ugla var afmælisgjöf frá Jóni Páli Halldórssyni, eiginmanni Birtu, sem að pantaði hana frá löggildum ugluræktanda í Alicante. Jón Páll hefur verið hugmyndaríkur í gegnum tíðina með dýragjöfum. „Hann hefur kannski verið að fylla upp í þetta tóm því mig er farið að langa í annað barn,“ segir hún og hlær. „Hann er duglegur að gefa mér dýr í afmælisgjafir og hefur áður gefið mér kanarífugla, páfagauk, frosk í búri og californian king-snák. Við höfum einnig átt þrjá stóra páfagauka og þar á meðal einn cockatoo-talfugl, en ég hef alltaf verið sjúk í uglur svo það er ekkert sem toppar hana. Núna erum við með kamelljón á heimilinu og síðhærðan naggrís,“ segir Birta.Litla uglan hefur ekki ennþá fengið nafn.Til eru þrettán viðurkenndir kynþættir af litlu uglunni bæði í Evrópu og Asíu. Litla uglan sem send var í kyngreiningu er karlkyns og líkist einna helst vinsælu Furby-dýraleikföngunum. „Tegundin nefnist Little owl og var helguð gyðjunni Aþenu svo ef hún hefði verið stelpa þá hefðum við skýrt hana Aþenu. Nú erum við öll að venjast henni og fljótlega förum við að temja hana með ákveðnu hljóði, sem hún tengir við mat. Ég hef annars verið að klippa niður mýs og kornhænur í litla bita og mata hana.“ Fjölskyldan er hrifin af kamelljóninu sem er á heimilinu.Birta býr ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum uppi í fjallshlíð í bænum Fontpineda fyrir utan Barcelona á Spáni. Þangað fluttu þau til að upplifa nýtt ævintýri en eiginmaður hennar vinnur sem húðflúrari inni í Barcelona. Birta hefur þó ekki slegið slöku við í hönnun sinni á merkinu Júniform og hannar munstur og saumar prótótýpurnar að flíkunum á vinnustofu sinni og sendir til Íslands þar sem framleiðslan fer fram. Vinkona hennar sér um verslunina í Hafnarfirði ásamt öðrum samstarfsaðilum sem Birta hefur unnið með í um tíu ára skeið. „Ég er með rosalega gott fólk sem vinnur með mér á Íslandi. Búsetan hér úti hefur verið ótrúlegt ævintýri þrátt fyrir að fyrsta árið hafi verið svolítið erfitt í borginni með krakkana. Við ákváðum svo að upplifa meiri náttúru og fluttum 40 mínútur frá borginni þar sem er skógur allt í kring og yndislegt að vera. Krakkarnir dafna vel, tala katalónsku og við erum búin að eignast fullt af góðum vinum.“ Post by Birta Björnsdóttir.
Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira