Kvartar ekki yfir neinu 13. júní 2014 11:00 Afmælisbarnið "Það verður ekki haldið upp á afmælið með veislu fyrr en í ágúst. Þá munum við besta vinkona mín slá saman fertugsafmælum okkar og bjóða til risaveislu.“Fréttablaðið/Vilhelm
Ég er eins og er í níu til fimm vinnu sem „casting director“ hjá Reykjavík Studios fyrir sjónvarpsþáttaröð sem heitir Ófærð þannig að ég mun nú bara mæta í vinnuna eins og venjulega,“ segir Selma spurð hvernig hún ætli að fagna fertugsafmæli sínu í dag. „Ég mun vakna snemma og borða góðan morgunmat með krökkunum mínum áður en ég fer að vinna og bjóða svo mínu nánasta fólki í kokteil milli sex og átta. Eftir það ætla ég út að borða með þeim sem nenna en það verður ekki haldið upp á afmælið með veislu fyrr en í ágúst. Þá munum við besta vinkona mín slá saman fertugsafmælum okkar og bjóða til risaveislu.“ Selma er tilnefnd til Grímuverðlaunanna, sem veitt verða á mánudaginn, bæði sem leikkona ársins í aðalhlutverki og söngvari ársins fyrir hlutverk sitt í söngleiknum Spamalot. Þetta er í fyrsta sinn sem hún er tilnefnd sem leikkona og er hún að vonum ánægð með það. „Ég er auðvitað bara rosalega sátt við það,“ segir hún og hlær. „Ég fer yfirleitt alltaf á Grímuna til að samgleðjast kollegum, enda er þetta uppskeruhátíð þar sem við klöppum hvert öðru á bakið og alltaf gott partí. Ég á nú alls ekki von á að fá verðlaunin, enda finnst mér heiðurinn aðallega vera fólginn í tilnefningunum og hefur alltaf fundist. Auðvitað væri gaman að vinna, það er alltaf gaman að fá verðlaun, en ég reikna alls ekki með því.“ Eftir sumarfrí í Frakklandi fer Selma til New York til að vinna í Hróa hetti með Gísla Erni og síðan til Svíþjóðar til að leikstýra. „Í janúar á næsta ári mun ég svo byrja að leikstýra þungarokksöngleik eftir Hugleik Dagsson og Sigurjón Kjartansson í Þjóðleikhúsinu, þannig að næsta leikár er löngu fullbókað. Auk þess er ég alltaf að syngja hér og þar annað slagið. Ég vinn svo fjölbreytt störf að ég fæ útrás á öllum þeim sviðum sem ég þarf að fá útrás á og get ekki kvartað yfir einu né neinu.“
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira