Skoðun

Þakkir til Rauða krossins

Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar
Eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda þegar kemur að hælisleitendum er að tryggja fullnægjandi þjónustu við meðferð umsókna þeirra. Í gær náðum við mikilvægum áfanga í þeim efnum þegar innanríkisráðuneytið og Rauði krossinn á Íslandi undirrituðu samning um þjónustu við hælisleitendur.

Helstu áherslur samningsins felast í því að hraða málsmeðferð hælisumsókna, bæta verklag og tryggja sem besta nýtingu á því fjármagni sem er varið í málaflokkinn. Með samningi við Rauða krossinn tekst okkur að tryggja hælisleitendum hlutlausa og óháða réttargæslu þannig að jafnræðis sé gætt og að allir hælisleitendur fái vandaða málsmeðferð.

Rauði krossinn mun einnig meta reglulega aðbúnað hælisleitenda, sinna heimsóknarþjónustu, félagsstarfi og fleira ásamt því að veita stjórnvöldum aðhald í málaflokknum. Þá munu samtökin halda úti alþjóðlegri leitarþjónustu til þess að hafa uppi á týndum ættingjum og endurvekja samband innan fjölskyldna þegar slíkt er mögulegt.

Styttri málsmeðferðartími

Eitt helsta úrlausnarefni stjórnvalda í kjölfar mikillar ásóknar eftir alþjóðlegri vernd hér á landi hefur verið tímalengd og dráttur málsmeðferðar. Í breiðri sátt samþykkti Alþingi breytingar á lögum um útlendinga í vor en þær breytingar fela meðal annars í sér að hægt verður að hraða málsmeðferðartíma umtalsvert. Frá og með 25. ágúst næstkomandi er stefnt að því að málsmeðferðartími hælisumsókna hér á landi verði að meðaltali ekki lengri en 90 dagar á hvoru stjórnsýslustigi í stað tveggja til þriggja ára eins og verið hefur síðustu misseri.

Um næstu áramót mun sjálfstæð úrskurðanefnd í útlendingamálum, sem endurskoðar ákvarðanir Útlendingastofnunar, taka til starfa. Nefndina munu skipa okkar helstu sérfræðingar í málefnum flóttamanna og mannréttinda. Með aukinni sérfræðiþekkingu innan málaflokksins, bæði hjá Rauða krossinum og stjórnvöldum, verða verkferlar skýrari og hægt verður að afgreiða mál með skjótari og skilvirkari hætti án þess að það komi niður á gæðum málanna.

Það er ástæða til að fagna þessum mikla áfanga sem nú hefur náðst í málefnum hælisleitenda hér á landi. Um leið og ég þakka Rauða krossinum fyrir að koma að þessu mikilvæga verkefni býð ég hann velkomin til mikilvægs samstarfs.




Skoðun

Sjá meira


×