Hvað er líkt með risaeðlu og leikskólakennara? Unnur Brynja Guðmundsdóttir skrifar 30. maí 2014 07:00 Jú, risaeðlur eru útdauðar og það stefnir óðum í að eins fari fyrir leikskólakennurum. Þeim fækkar hratt vegna aukins álags og launa sem ekki eru í neinu samræmi við erfiðið. Ég útskrifaðist árið 1992 ásamt um 75 öðrum leikskólakennurum og hef starfað á leikskóla síðan. Leikskólakennarastarfið hefur eflst og þróast mikið í millitíðinni. Á þessum árum hef ég vaxið í mínu starfi og verið dugleg að safna í viskupokann sem ég hef svo komið áleiðis. Leikskólar landsins hafa enda eflst og fagleg kennsla okkar dafnað. Leikskólakennaranámið hefur einnig vaxið á þessum tíma og er komið í mastersnám. En það er ekki bara fagvitundin sem hefur aukist með árunum heldur hafa barnahóparnir einnig stækkað. Fleiri börn eru á hvern starfsmann og á minna rými. Með þessari þróun hefur álagið á kennarann aukist gríðarlega. Hins vegar hafa launin ekki dafnað jafn vel miðað við fyrrnefnt álag. Nú er ég komin yfir fertugt, er búin að fá nóg og ætla að feta aðra braut. Fjölmargir leikskólakennarar fara í önnur störf eftir fertugt; stjórnunarstörf innan sama geira eða taka að sér sérkennslu, minnka við sig starfshlutfall eða leita á önnur mið. Kennurum sem starfa á gólfinu með börnunum fer fækkandi og ekki freista launin og hvað þá álagið. Nú í vor útskrifuðust fimm leikskólakennarar frá HÍ. En það er auðvitað með söknuði sem ég kveð leikskólastarfið í Reykjavíkurborg en ég hóf störf þegar ég var um 17 ára. Ég mun ekki fá eins mikið af hvatningu og hrósi líkt og ég geri frá nemunum mínum og ekki mun ég fá hópknús er ég mæti í byrjun dags til starfa. Kæru sveitarstjórnir, breytinga er þörf! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Jú, risaeðlur eru útdauðar og það stefnir óðum í að eins fari fyrir leikskólakennurum. Þeim fækkar hratt vegna aukins álags og launa sem ekki eru í neinu samræmi við erfiðið. Ég útskrifaðist árið 1992 ásamt um 75 öðrum leikskólakennurum og hef starfað á leikskóla síðan. Leikskólakennarastarfið hefur eflst og þróast mikið í millitíðinni. Á þessum árum hef ég vaxið í mínu starfi og verið dugleg að safna í viskupokann sem ég hef svo komið áleiðis. Leikskólar landsins hafa enda eflst og fagleg kennsla okkar dafnað. Leikskólakennaranámið hefur einnig vaxið á þessum tíma og er komið í mastersnám. En það er ekki bara fagvitundin sem hefur aukist með árunum heldur hafa barnahóparnir einnig stækkað. Fleiri börn eru á hvern starfsmann og á minna rými. Með þessari þróun hefur álagið á kennarann aukist gríðarlega. Hins vegar hafa launin ekki dafnað jafn vel miðað við fyrrnefnt álag. Nú er ég komin yfir fertugt, er búin að fá nóg og ætla að feta aðra braut. Fjölmargir leikskólakennarar fara í önnur störf eftir fertugt; stjórnunarstörf innan sama geira eða taka að sér sérkennslu, minnka við sig starfshlutfall eða leita á önnur mið. Kennurum sem starfa á gólfinu með börnunum fer fækkandi og ekki freista launin og hvað þá álagið. Nú í vor útskrifuðust fimm leikskólakennarar frá HÍ. En það er auðvitað með söknuði sem ég kveð leikskólastarfið í Reykjavíkurborg en ég hóf störf þegar ég var um 17 ára. Ég mun ekki fá eins mikið af hvatningu og hrósi líkt og ég geri frá nemunum mínum og ekki mun ég fá hópknús er ég mæti í byrjun dags til starfa. Kæru sveitarstjórnir, breytinga er þörf!
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar