Matur

Eftirréttir sem þarf ekki að baka - UPPSKRIFTIR

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Mörgum finnst ekkert sérstaklega gaman að baka en vilja samt bjóða upp á dýrindiseftirrétti sem eru sætir í munni. Bakaraofninn er heldur ekki mikill vinur sumra.

Lífið býður hér upp á þrjár girnilegar uppskriftir að eftirréttum sem þarf ekkert að baka heldur aðeins hræra saman nokkrum hráefnum og skella í kæli. Einfaldara getur það varla verið.

Súkkulaðibitar

* Um það bil 16 bitar

250 g vanillukökur, með eða án krems

4 msk. kakó

1 bolli „condensed milk“ (fæst til dæmis í Kosti)

200 g smjör

2 tsk vanilludropar

¾ bolli kókosmjöl

½ bolli saxaðar salthnetur

Súkkulaðikrem

½ bolli dökkt súkkulaði

¼ bolli rjómi

1½ bolli flórsykur

Myljið kökurnar í matvinnsluvél – ekki of mikið svo nokkrir meðalstórir bitar séu enn í mulningnum. Blandið kökumylsnunni, kókosmjöli og salthnetum saman í stórri skál. Bræðið smjörið í potti og hellið „condensed milk“ og kakó saman við. Þegar allt er blandað vel saman er potturinn tekinn af hellunni og vanilludropunum bætt saman við. Blandið smjörblöndunni við kökumylsnublönduna og hellið í form sem er búið að klæða með bökunarpappír. Kælið þangað til blandan er orðin stíf. Því næst er röðin komin að súkkulaðikreminu. Hitið rjómann í örbylgjuofni í um það bil eina mínútu og hellið dökka súkkulaðinu ofan í og leyfið því að bráðna. Hrærið flórsykurinn saman við. Smyrjið kreminu yfir stífan botninn. Kælið aftur og skerið í bita.

* Fengið héðan.

Toblerone-ostakaka



Botn:

250 g mulið súkkulaðikex

100 g bráðið smjör



Fylling:

200 g Toblerone

100 g dökkt súkkulaði

250 g rjómaostur

200 ml rjómi

250 g mascarpone



Toppur:

200 g Toblerone eða súkkulaðibitar



Smyrjið 20 sentímetra, hringlaga kökuform. Myljið súkkulaðikexið í matvinnsluvél og blandið mylsnunni saman við smjörið. Setjið blönduna í botninn á kökuforminu og kælið á meðan fyllingin er útbúin. Bræðið Toblerone og dökkt súkkulaði yfir vatnsbaði. Leyfið blöndunni að kólna aðeins. Þeytið rjómaostinn þangað til hann er rjómakenndur. Þeytið rjómann í annarri skál þangað til hann er meðalstífur. Blandið rjómaosti, rjóma og mascarpone vel saman. Hrærið súkkulaðiblönduna saman við og hellið þessu yfir botninn. Kælið yfir nótt eða að minnsta kosti í átta klukkustundir. Skreytið með Toblerone-bitum eða súkkulaðibitum.

* Fengið héðan.

Sítrónustykki



Botn:

200 g hafrakex

1 bolli kókosmjöl

½ bolli „condensed milk“

100 g smjör

börkur af 1 sítrónu



Sítrónukrem:

2 bollar flórsykur

40 g mjúkt smjör

safi úr 1 sítrónu



Hrærið „condensed milk“ og smjör í potti í fimm mínútur yfir vægum hita og hrærið stanslaust í blöndunni á meðan. Myljið hafrakexið í matvinnsluvél. Blandið mylsnunni, kókosmjöli og tveimur teskeiðum af sítrónuberki saman. Blandið þessu síðan vel saman við smjörblönduna. Þrýstið blöndunni í botninn á formi sem búið er að klæða með bökunarpappír og kælið í tvo tíma eða þangað til botninn er orðinn stífur. Blandið flórsykri, smjöri og sítrónusafa saman og breiðið kremið yfir botninn. Kælið í hálftíma til viðbótar og skreytið með smá sítrónuberki.

* Fengið héðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×