Matur

Hver á bestu böku Íslands? Uppskrift að Key Lime-böku

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Key Lime-bakan er afskaplega sumarleg.
Key Lime-bakan er afskaplega sumarleg. Vísir/Getty

Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi og Ásbrú efna til tveggja keppna í dag, sjálfan uppstigningardag. Eru keppnirnar liður í árlegu karnivali sem heitir Opinn dagur á Ásbrú og þemað er All American County Fair.

Keppnirnar eru tvenns konar, annars vegar chili-keppni sem opin er öllum veitingahúsum og hins vegar bökukeppni sem opin er almenningi.

Bökur eru afar vinsælar í Bandaríkjunum og eru nokkrar útgáfur til af ekta, bandarískum bökum. Ein þeirra er svokölluð Key Lime-baka og á rætur sínar að rekja til Flórída Keys í Bandaríkjunum. Þar voru engir ísskápar þangað til Overseas-þjóðvegurinn var tekinn í notkun árið 1938 og því þurftu bakarar að nota dósamjólk í baksturinn, eða „condensed milk“. Því varð dósamjólkin lykilhráefni í þessari böku Flórída-fylkis.

Hefðbundin Key Lime-baka

10 hafrakex

1/2 bolli möndlur

6 msk. mjúkt smjör

4 eggjarauður

1 dós „condensed milk“ (fæst vanalega í Kosti)

1/2 bolli súraldinsafi

2 tsk. rifinn súraldinbörkur

Þeyttur rjómi ofan á (valfrjálst)



Hitið ofninn í 175°C. Myljið kexið í matvinnsluvél og setjið það í miðlungsstóra skál. Myljið möndlurnar í matvinnsluvél og blandið þeim saman við kexmylsnuna. Því næst er smjörinu blandað við og blöndunni ýtt í botninn á tuttugu sentimetra hringlaga formi. Bakið botninn í um það bil tólf mínútur eða þangað til hann er aðeins farinn að brúnast. Leyfið botninum að kólna. Þeytið eggjarauðurnar þangað til þær eru ljósgular og aðeins farnar að þykkna, um það bil tvær mínútur. Minnkið hraðann og bætið „condensed milk“ við. Bætið súraldinsafanum rólega saman við. Blandið síðan berkinum saman við með sleif eða sleikju. Hellið blöndunni ofan á botninn og bakið í um það bil fimmtán mínútur þannig að fyllingin sé enn örlítið blaut. Leyfið bökunni að kólna, setjið eitthvað yfir hana og kælið í að minnsta kosti átta klukkustundir. Berið hana fram kalda með þeyttum rjóma ofan á ef vill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×