Sameina áhugamálin á vefsíðunni Femme Kristjana Arnarsdóttir skrifar 27. maí 2014 09:15 Bloggsíðan Femme.is er farin í loftið en á vefnum verður samansafn af áhugamálum sex ungra kvenna. Á myndinni má sjá þær Söru Dögg Guðjónsdóttur, Mörtu Rún Ársælsdóttur, Eddu Gunnlaugsdóttur og Söru Sjöfn Grettisdóttur. Mynd/Gróa Sigurðardóttir „
Hver og einn bloggari mun einblína svolítið á sitt eigið en vefsíðan verður samansafn af tísku, innanhússhönnun, lífsstíl, mat og menningu, með smá innsýn í persónulega lífið,“ segir Sylvía Dagmar Briem Friðjónsdóttir, en Sylvía er í hópi sex bloggara sem stofnað hafa bloggið Femme.is. Stúlkurnar koma víða að og segir Sylvía að fjölbreytileikinn verði allsráðandi. „Ég hef sjálf verið að þjálfa á Dale Carnegie, hef unnið mikið með fólki og verð því með áhugaverð viðtöl við fólk og fleira skemmtilegt. Alexandra Helga mun birta alls konar uppskriftir, bæði hollar og óhollar, Marta Rún verður með umfjöllun um mat og menningu, Sara Dögg er innanhússarkitekt og mun taka púlsinn á því sem er að gerast í þeim bransanum, Edda mun koma inn á tísku og listir og Sara Sjöfn er mikil áhugamanneskja um hönnun og ætlar að veita innsýn í hönnunarheiminn.“ Edda Gunnlaugsdóttir bloggar einnig á síðunni en hún segir undirbúningsferlið hafa verið stórskemmtilegt. „Við komum allar úr mismunandi áttum og erum með mismunandi áhugamál. Sumar höfðu verið að blogga áður en aðrar höfðu mikinn áhuga á því að byrja að skrifa og á fyrsta fundi kom okkur öllum ótrúlega vel saman.“ Sylvía segir að bloggheimurinn hér á landi hafi sótt í sig veðrið undanfarin ár. „Það eru gríðarlega mörg blogg að spretta upp núna sem er alveg ótrúlega skemmtilegt. Fólk í dag er mikið í tölvunni og því er gaman að geta skoðað eitthvert skemmtilegt lesefni á vefnum.“
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira