List sem hægt er að ganga í Baldvin Þormóðsson skrifar 26. maí 2014 09:30 Haraldur Jónsson hefur unnið mikið með samspil líkamans við heiminn og umhverfið. MYND/Baldur Kristjánsson „
Þetta er allt handgert og unnið í sameiningu,“ segir fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson en hann vinnur nú að fatnaði ásamt myndlistarmanninum Haraldi Jónssyni. „Þetta er svona myndlistartískublanda,“ segir Guðmundur en tvíeykið silkiprentar grafík sem Haraldur gerir á buxur sem Guðmundur hannar. „Það er spennandi að tefla saman þessum tveimur heimum myndlistar og tísku og sjá hvað gerist. Það er fallegur árekstur“ segir Haraldur um samstarfið. „Hugmyndin fæddist eiginlega á vinnustofunni minni,“ segir listamaðurinn sem hefur verið að vinna mikið með samspil líkamans við heiminn og umhverfið. „Það var eiginlega uppsprettan að verkinu, samskiptamunstur okkar og hvernig við erum í hverju einasta skrefi að taka ákvörðun um hvað við ætlum að gera næst.“ Samstarfsmennirnir hafa unnið að verkefninu í tvo mánuði og ætluðu að sýna afraksturinn í sumar en ákváðu að halda sýninguna frekar á sama tíma og Listahátíð Reykjavíkur er í fullum gangi og bjóða því til veislu í verslun Guðmundar, JÖR, næsta fimmtudag klukkan sex. „Það verður innsetning í búðinni, og smá partí,“ segir Guðmundur en tískuáhugafólk getur glaðst yfir því að gallabuxurnar umtöluðu verða til sölu. „Fólk getur keypt buxurnar í mjög takmörkuðu upplagi, það verða bæði dömu- og herragallabuxur,“ segir fatahönnuðurinn og bætir því við að þetta sé kjörið tækifæri til þess að kaupa sér list sem hægt er að ganga í. „Svo er líka hægt að ramma þær inn og hafa þær upp á vegg, svona eins og á Hard Rock.“
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira