Fjör á Ormadögum 23. maí 2014 10:00 Börnin skemmta sér konunglega á Ormadögum. MYND/Úr einkasafni
Ormadagar, barnamenningarhátíð Kópavogs stendur nú yfir. Ormadagar hófust síðastliðinn mánudag og taka á fimmta þúsund leik- og grunnskólabörn í Kópavogi þátt í viðburðum hátíðarinnar í vikunni. Börnin sækja ýmsa menningarviðburði í menningarhúsum Kópavogs, fara á tónleika og taka þátt í listasmiðjum og fræðslu. Sirkus, lista- og menningarsmiðjur, tónleikar og hoppukastalar standa gestum og gangandi til boða í menningarhúsum Kópavogs og næsta nágrenni á laugardaginn. Á sunnudaginn lýkur Ormadögum með barnamenningarmessu og tónleikum í Kópavogskirkju og sundlaugarpartýi í Sundlaug Kópavogs. Ormadagar eru nú haldnir í þriðja sinn en hátíðin hefur aldrei verið jafn umfangsmikil. „Það er gaman að sjá hversu vel skólar og leikskólar í bænum taka þátt í þessari hátíð og ánægjulegt að börnin kynnist menningarhúsum bæjarins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, sem hitti börn á Ormadögum á tónleika í Salnum á þriðjudag.Pamela De Sensi, stjórnandi Ormadaga, segir hátíðina mikilvæga fyrir barna- og fjölskyldumenningu í bænum. „Undirtektir skólanna hafa verið mjög góðar og vonandi mæta svo sem flestir á hátíðina um helgina.“ Ormadagar eru styrktir af Kópavogsbæ og haldnir í samvinnu við menningarstofnanir Kópavogsbæjar á Borgarholtinu en þær eru: Tónlistarsafnið, Bókasafnið, Salurinn, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Tónlistarskólinn og Molinn. Eitt meginmarkmið hátíðarinnar er að börn í Kópavogi kynnist þessum stofnunum og upplifi dagskrá sem sérstaklega er miðuð við þeirra aldur.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira