Fyrirsjáanlegt ástand Steinar Berg Ísleifsson skrifar 15. maí 2014 00:00 Bundið slitlag frá Borgarfirði um Lundareykjardal og Uxahryggi til Þingvalla er einföld leið til að dreifa vaxandi fjölda ferðamanna. Þessi aðgerð er á núverandi samgönguáætlun en teygð yfir mörg ár; frá 2015 til 2022. Bútasaumur. Reyndar var byrjað með bútasaumsaðferðinni árið 2004 og þá lagður 20 km kafli af upphækkuðum góðum vegi á Uxahryggjum. Kostnaðurinn nam 85% af kostnaðaráætlun fullbúins vegs með bundnu slitlagi. Síðan ekki söguna meir. Af hverju var ekki farið alla leið og lokið við varanlegt bundið slitlag? Góð spurning, segja þeir sem tóku þessa ákvörðun. Þessi vegur hefur síðan þurft að sæta vanrækslu í viðhaldi. En samt: undirstaðan bíður tilbúin fyrir bundið slitlag og er því hagkvæm framkvæmd. Það er kjörið tækifæri núna þegar samgönguáætlun er í endurskoðun að gefa þessari veglagningu forgang þannig að henni verði lokið 2017. Helstu rök fyrir því að leggja bundið slitlag á þessa 60 km leið sem tengir saman Vesturland og Suðurland eru: Dreifing umferðar. Sérstaklega á álagstímum yfir sumarmánuðina; aukið umferðaröryggi. Tengivegur frá Vesturlandi til Þingvalla stuðlar að dreifingu ferðamanna. Á Suðurlandi eru margir ferðamannastaðir ofnýttir en vannýttir á Vesturlandi. Opnar aðgengi fyrir smábíla, rútur, húsbíla og bíla með hjól- eða fellihýsi í togi, sem alla jafna halda sig helst á bundnu slitlagi. Auknir valmöguleikar ferðaskipuleggjenda til að setja saman nýja ferðapakka í lengri og styttri hringferðir með viðkomu í báðum landshlutum. Vegbót á þessari leið kemur íbúum og fjölda fyrirtækja í báðum landshlutum til góða. Lagning bundins slitlags á þessari leið er hagkvæm vegna þess að veglagningin fylgir að langmestu leyti núverandi vegstæði. Umhverfismat vegna tengingar við veginn í þjóðgarði Þingvalla er fyrirliggjandi. Rökin voru gild fyrir fimm árum, hvað þá núna þegar ferðamönnum hefur fjölgað um helming síðan þá. Úr fimm hundruð þúsund í milljón og áframhaldandi aukning á næstu árum. Er ekki skynsamlegt að bregðast við fyrirsjáanlegu ástandi? Ástæðurnar eru fleiri. Gjaldtöku í Hvalfjarðargöng skal hætt árið 2018. Forráðamenn Spalar hafa viðrað hugmynd um gerð nýrra ganga og þar með áframhaldandi gjaldtöku. Gjaldið er í raun íþyngjandi skattur sem lofað var að yrði tímabundinn. Full ástæða er til að staðið verði við gerðan samning og gjaldtöku hætt þegar samningstímanum lýkur. Það blasir við að bundið slitlag milli Þingvalla og Borgarfjarðar er valmöguleiki sem myndi koma sér vel á álagstímanum í júlí sem forsvarsmenn Spalar hafa nefnt til rökstuðnings máli sínu sem helstu ástæðu tvöföldunar ganganna. Það er full ástæða til þess að hraða lagningu bundins slitlags um Uxahryggi og ljúka verkinu áður en ríkið fær Hvalfjarðargöng til umráða. Almenna skynsemi, hvar ertu? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar