Innlent

Tvö framboð ætla að kæra til innanríkisráðuneytis ef listar verða afentir

Sjálfstæðismenn í Kópavogi vilja fá afhenta undirskriftalista annarra flokka. Menn ætla í hart til að koma í veg fyrir að listarnir verði afhentir.
Sjálfstæðismenn í Kópavogi vilja fá afhenta undirskriftalista annarra flokka. Menn ætla í hart til að koma í veg fyrir að listarnir verði afhentir. Fréttablaðið/Pjetur
Fallist yfirkjörstjórn í Kópavogi á að afhenda umboðsmanni Sjálfstæðisflokksins afrit af meðmælendalistum annarra flokka hafa Dögun og umbótasinnar í Kópavogi og Næstbesti flokkurinn ákveðið að láta reyna á þá afstöðu fyrir æðra stjórnvaldi og dómi.

Yfirkjörstjórn tekur málið fyrir í dag. Verði samþykkt að afhenda listana verður sú ákvörðun kærð til innanríkisráðuneytis og síðan höfðað flýtimeðferðarmál fyrir Héraðsdómi Reykjaness ef ráðuneytið hnekkir ekki ákvörðun yfirkjörstjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×