Einn einn tveir og barnamenning Sigríður Dögg Guðmundsdóttir skrifar 1. maí 2014 07:00 Í Reykjavík búa tæplega 25 þúsund börn sem eru sextán ára og yngri og á hverju ári er sérstök hátíð haldin þeim til heiðurs. Barnamenningarhátíð í Reykjavík er nú haldin í fjórða skipti og stendur fram til sunnudagsins 4. maí. Búist er við að um 40 þúsund manns muni njóta þeirra 125 glæsilegu viðburða sem eru á Barnamenningarhátíð í ár. Fjölbreytni og úrval einkenna dagskrána eins og sjá má á heimasíðu hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is og í bæklingi sem öll leikskóla- og grunnskólabörn í Reykjavík fengu heim með sér. Í Iðnó verður sköpun og leikgleði gert hátt undir höfði í sérstöku barnamenningarhúsi undir nafninu Ævintýrahöllin. ASSITEJ Ísland – samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, efna til leiklistarhátíðar með vönduðum leik- og danssýningum, vinnusmiðjum og fleiri spennandi viðburðum. Víða um borgina verða alls kyns viðburðir fyrir alla aldurshópa. Þema hátíðarinnar í ár er öryggi og taka Barnamenningarhátíð í Reykjavík og Neyðarlínan höndum saman um að kenna börnum mikilvægi þess að nýta sér neyðarnúmerið 112. Skilaboðin eru þau að barn eigi ekki einungis að nota númerið þegar eldsvoða og slys ber að höndum heldur líka ef því líður illa eða einhverjum sem það þekkir líður illa. Einn einn tveir lagið var samið í þeim tilgangi af Dr. Gunna og Þórarinn Eldjárn gerði textann. Hér er eitt erindi úr laginu: Neyðarnúmerið Sem notast allir við - ekki einungis Við eldsvoða og slys – Er líka vernd og vörn Sem virkar fyrir börn Ástæða þess að Barnamenningarhátíð í Reykjavík er jafnglæsileg og stór hátíð og raun ber vitni er vinna og sköpunarkraftur um 600 kvenna og manna sem standa á bak við viðburði hátíðarinnar. Allt þetta fólk á heiður skilinn fyrir að vinna að einu göfugasta markmiði sem til er, að gleðja börn. Ömmur, afar og foreldrar eru hvött til að kynna sér dagskrá hátíðarinnar þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, og skemmta sér svo konunglega með börnunum næstu daga. Gleðilega Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2014! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason Skoðun Skoðun Skoðun Hinsegin Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Leiðtogi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sögulegt ár í borginni Skúli Helgason skrifar Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Öryggið á nefinu um áramótin Eyrún Jónsdóttir,Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar höggbylgjan skellur á Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hefur þú rétt fyrir þér? Svarið er já Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Markmiðin sem skipta máli Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Netverslun með áfengi og velferð barna okkar Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Við gerum það sem við sögðumst ætla að gera Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Stingum af Einar Guðnason skrifar Skoðun Guðbjörg verður áfram gul Reynir Traustason skrifar Skoðun Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Hinir „hræðilegu“ popúlistaflokkar Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í mikilli sókn Orri Björnsson skrifar Skoðun Jólapartýi aflýst Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Umbúðir, innihald og hægfara tilfærsla kirkjunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verðmæti dýra fyrir jörðina er ekki mælanlegt í krónum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Staða eldri borgara á Íslandi í árslok 2025 Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Landhelgisgæslan er óábyrg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Kristinn Árni Hróbjartsson skrifar Skoðun Kolefnissporið mitt Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Fullkomlega afgreitt þjóðaratkvæði Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á atvinnuvegaráðherra von á kraftaverki? Björn Ólafsson skrifar Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Sjá meira
Í Reykjavík búa tæplega 25 þúsund börn sem eru sextán ára og yngri og á hverju ári er sérstök hátíð haldin þeim til heiðurs. Barnamenningarhátíð í Reykjavík er nú haldin í fjórða skipti og stendur fram til sunnudagsins 4. maí. Búist er við að um 40 þúsund manns muni njóta þeirra 125 glæsilegu viðburða sem eru á Barnamenningarhátíð í ár. Fjölbreytni og úrval einkenna dagskrána eins og sjá má á heimasíðu hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is og í bæklingi sem öll leikskóla- og grunnskólabörn í Reykjavík fengu heim með sér. Í Iðnó verður sköpun og leikgleði gert hátt undir höfði í sérstöku barnamenningarhúsi undir nafninu Ævintýrahöllin. ASSITEJ Ísland – samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, efna til leiklistarhátíðar með vönduðum leik- og danssýningum, vinnusmiðjum og fleiri spennandi viðburðum. Víða um borgina verða alls kyns viðburðir fyrir alla aldurshópa. Þema hátíðarinnar í ár er öryggi og taka Barnamenningarhátíð í Reykjavík og Neyðarlínan höndum saman um að kenna börnum mikilvægi þess að nýta sér neyðarnúmerið 112. Skilaboðin eru þau að barn eigi ekki einungis að nota númerið þegar eldsvoða og slys ber að höndum heldur líka ef því líður illa eða einhverjum sem það þekkir líður illa. Einn einn tveir lagið var samið í þeim tilgangi af Dr. Gunna og Þórarinn Eldjárn gerði textann. Hér er eitt erindi úr laginu: Neyðarnúmerið Sem notast allir við - ekki einungis Við eldsvoða og slys – Er líka vernd og vörn Sem virkar fyrir börn Ástæða þess að Barnamenningarhátíð í Reykjavík er jafnglæsileg og stór hátíð og raun ber vitni er vinna og sköpunarkraftur um 600 kvenna og manna sem standa á bak við viðburði hátíðarinnar. Allt þetta fólk á heiður skilinn fyrir að vinna að einu göfugasta markmiði sem til er, að gleðja börn. Ömmur, afar og foreldrar eru hvött til að kynna sér dagskrá hátíðarinnar þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, og skemmta sér svo konunglega með börnunum næstu daga. Gleðilega Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2014!
Skoðun Fimmtán algengar rangfærslur um loftslagsbreytingar – og hvað er rétt Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hættuleg þöggunarpólitík: Hvernig hræðsla og sundrung skaða framtíð Íslands Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Jólareglugerð heilbrigðisráðherra veldur usla Alma Ýr Ingólfsdóttir,Telma Sigtryggsdóttir,Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið grípur of seint inn: Um börn og unglinga í vanda, úrræðaleysi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar Kristín Kolbeinsdóttir skrifar