Verður að þétta byggð í samráði við íbúa Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 1. maí 2014 11:22 Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins „
Ef það á að þétta byggð í Reykjavík verður að gera það í samvinnu við íbúa. Það verður að vera á hreinu hvert verklagið er,“ segir Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Íbúar í vesturbæ urðu fyrir talsverðum óþægindum og tjóni vegna sprenginga á Lýsisreit, snemma í vetur. Íbúar nokkurra fasteigna á svæðinu undirbúa málssókn vegna tjóns á fasteignum sínum. Hildur segir að í kjölfar þess hafi hún og fleiri fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lagt til að skipaður yrði vinnuhópur sem hefði það hlutverk að skoða uppbyggingarmál borgarinnar. Hópnum yrði falið að endurskoða núgildandi byggingarreglugerð, kortleggja réttarstöðu íbúa, endurskoða reglur heilbrigðiseftirlitsins og fleira er lýtur að stöðu íbúa gamalla og gróinna hverfa í framtíðinni. Borgarstjórn samþykkti að skipa slíkan hóp 4. mars síðastliðinn og átti umhverfis- og skipulagsráð að gera það. Síðan hefur ekkert gerst. Hjálmar Sveinsson, Samfylkingu, á sæti í skipulagsráði. Hann segir að það sé yfirsjón að hópurinn skuli ekki hafa verið skipaður strax. „Ef við ætlum að fylgja þeirri stefnu sem er mörkuð í aðalskipulagi að þétta byggð er nauðsynlegt að fara í gegnum allar vinnureglur þar sem verið er að byggja hús inni í grónum hverfum,“ segir Hjálmar
Kosningar 2014 fréttir Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Sjá meira