Sígild leikrit rykfalla aldrei Halldór Þorsteinsson skrifar 10. apríl 2014 07:00 Þótt einkennilegt megi heita ganga sumir leikstjórar með þá flugu í höfðinu að þeir geti betrumbætt sígild verk með djörfum leikbrellum sínum og áróðri og það ekki aðeins frá eigin brjósti heldur líka frá skoðanasystkinum sínum. Að mínu viti eiga sígild verk aldrei að þjóna þeim vafasama tilgangi að vera einskonar stökkpallur þar sem leikstjórar og samherjar þeirra geta komið á framfæri persónulegum lífsskoðunum sínum og samherja sinna. Sígild leikrit standa einlægt fyrir sínu. Nýjasta hneykslið í þessum efnum er Hús Bernarda Alba eftir Fr. Garcia Lorca. Mér er spurn hvernig Kristín Jóhannesdóttir gat leyft sér að hrófla jafn gróflega við verki spænska snillingsins eins og hún gerði. Fráleitt þótti mér með öllu að fela karlmanni aðalhlutverkið og svo bætti það ekki úr skák þegar hamast var við að troða upp á leikhúsgesti persónulegum og pólitískum áróðri ásamt uppáþrengjandi viðaukum frá samherjum sínum. Allt þetta brölt var í einu orði sagt hreint og beint skemmdarverk á leikritinu. Væri því ekki réttast að kalla þessa sýningu, Hús Bernarda Alba og Hús Kristínar Jóhannesdóttur. Hið fyrrnefnda er ákaflega hátt metið, en hið síðarnefnda er í lægri kantinum, ef svo má að orði komast. Nú ætla ég að taka mér það bessaleyfi að vitna í gamlan leikdóm minn (Mbl. 12.nóv. 1988) undir fyrirsögninni: „Hamlet í nýjum fötum frá Saumastofu Kjartans“, en þar segir m.a.: „Hvernig getum við hér norður á Íslandi verið orðin hundleið á „hefðbundnum“ og „steinrunnum“ leikmáta eða flutningi á verkum Williams Shakespeares, ef miðað er við þau fáu, já alltof fáu skipti, sem þau hafa verið sviðsett hér. Óþarfi er því með öllu að þurrka rykið af þessum „safngripum“ sem Hallmari Sigurðsyni er svo tíðrætt um og sem skoðanabróðir minn, Helgi Hálfdánar hefur þegar réttilega bent á í skeyti sínu til leikhússtjórans.“ Versta dæmið um svona óskynsamlegt og ótímabært fikt við sígilt leikrit var sýningin á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen undir leikstjórn Baltasars Kormáks fyrir nokkrum árum. Þar var öllu brenglað eða hrært saman þannig að það var ekki nokkur leið fyrir áhorfendur að fylgjast með framvindu sjónleiksins og misstu því alveg af þræðinum, enda var þetta ein endalaus flækja. Þessa sýningu hef ég æ síðan kallað Pétur Graut. Þessi mistök þín, Baltasar Kormákur, voru þér ekki til sóma, en mistök eru til þess að læra af þeim, en hitt máttu vita að ég fagna velgengni þinni í kvikmyndaheiminum og það af heilum hug. Að endingu langar mig til, lesendur góðir, að undirstrika eina mikilvæga staðreynd, en hún er sú að við getum alla vega prísað okkur sæla að nútímatónlistarmenn myndu aldrei nokkru sinni taka upp á þeim fjanda að feta í fótspor þessara „listumbótasinnuðu“ leikstjóra með svipuðum hætti og þeir hafa gert, enda hafa Beethoven, Bach, Brahms, Mozart og Verdi gjörsamlega fengið að vera í friði fyrir svona vanhugsuðu fikti við verk sín, góðu heilli. Lengi lifi listin og sömuleiðis hugsandi og næmir neytendur hennar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Skoðun Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun