Árlegur skrípaleikur leikskóla Reykjavíkur Þóra Björk Friðriksdóttir skrifar 10. apríl 2014 07:00 Nú er að byrja sá tími sem Reykjavíkurborg fer að senda dagforeldrum í borginni kaldar sumarkveðjur með því að tilkynna foreldrum barna sem eru með börnin sín hjá dagforeldrum að það sé að losna pláss á leikskólum 1. júní. Síðustu ár hefur Reykjavíkurborg herjað á dagforeldra með allskyns breyttum reglum og yfirgangi, virðist sem stjórnendur Reykjavíkur vilji bara ekki hafa dagforeldra í borginni, þar má nefna þessa 1. júní breytingu. Áður var það venja að börn voru hjá dagforeldrum fram að sumarfríi og hófu svo aðlögun á leikskóla að fríi loknu, samkomulag sem kom öllu vel. Dagforeldrar voru tekjulausir í júli og tóku sitt sumarfrí þá en með þessari breytingu hjá Reykjavíkurborg þá er það svo í dag að margir dagforeldrar eru nú tekjulausir í tvo mánuði á ári, þ.e.a.s júní og júlí vegna þess að börnum er troðið inn í leikskóla án þess að það sé pláss. Þetta er falið með svokölluðum „útideildum“ fyrir elstu börnin, að auki eykst álag á foreldra þar sem aðlögun hefst nú í júní, svo tekur sumarfrí við og stundum aftur hálfgerð aðlögun með tilheyrandi fríum foreldra og margföldu álagi á starfsfólk leikskólanna eftir sumarfrí. Auðvitað ætti það að vera réttur foreldra að velja á milli þess að hafa barn hjá dagforeldri eða leikskóla og borga sama gjald en svo er ekki, það er himinn og haf milli þess jafnræðis sem ætti að ríkja í vali fyrir foreldra. Í dag er það svo að Reykjavíkurborg niðurgreiðir rúmlega tvöfalt hærri upphæð með hverju barni í leikskóla en barni sem er vistað hjá dagforeldri auk þess sem foreldrar þurfa að greiða hærra með barninu hjá dagforeldrinu. Hvernig væri að foreldrar myndu nú láta heyra í sér varðandi þessi mál eða er þeim alveg sama? Leikskólastjórum ber að virða óskir foreldra um hvenær vistun hefst í leikskóla og ætti að vera foreldranna val að klára vistun fram að sumarfríi hjá dagforeldri til að minnka rót hjá börnunum. Það verður að minnsta kosti magurt sumar hjá mörgum dagforeldrum enn eitt árið þar sem dagforeldrar eiga ekki einu sinni rétt á atvinnuleysisbótum þrátt fyrir að Reykjavíkurborg taki af þeim vinnuna. Ætli það sé hægt að komast að í mötuneyti ráðhússins? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira