Lífið

"Hún hefur reynst mér svo vel“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Partípían Lindsay Lohan hefur lifað tímana tvenna og þakkar spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey fyrir að hjálpa sér að komast á beinu brautina.

„Ég tala við hana nánast daglega og hún hefur reynst mér svo vel,“ segir Lindsay í samtali við Ellen DeGeneres en raunveraleikaþáttur um Lindsay er sýndur á sjónvarpsstöð Opruh, OWN.

„Hún kynnti mig fyrir hugleiðslu. Hún er ein af ástæðunum fyrir því að hugleiðsla er svo stór partur af lífi mínu. Hún hefur verið mér skært leiðarljós og manneskja sem ég dái.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×