Skoðun

18 bankastjórar fá áminningu í mars

Jón Guðmundsson skrifar
Staðreyndin* er sú, að hér á landi fá 18 bankastjórar áminningu, 5 eru lækkaðir í tign og 1-2 fá reisupassann, bara í mars. Svona er þetta líka í hverjum mánuði allan ársins hring.

Minn prívatbankastjóri fékk sína áminningu í desemberbyrjun 2008, svolítið kaldhæðnislegt, þar sem skömmu áður hafði orðið hrun í stofni bankastjóra peningabankanna. Það var svo fyrir 5 árum, í mars 2009, sem minn var lækkaður í tign og hefur nú það eina hlutverk að fara annað slagið út með ruslið. Þetta var áfall út af fyrir sig fyrir minn mann en hann hafði jú gegnt sínu hlutverki af kostgæfni fram að þessu. Nú var bankahólfunum lokað og allri útlánastarfsemi hætt. Þá tók við smá sólbað með sterkum geislum og pínu dópi. Það þurfti að sjálfsögðu að taka heilmikið til í hausnum hjá mínum manni til að hann sætti sig við breytt hlutskipti.

Það er með þessa bankastjóra, eins og svo marga aðra, að þeir eru með frekar stórt egó og halda að þeir séu æviráðnir í mikilvægustu verkin og geti bara hagað sér eins og þeim sýnist, en það er öðru nær. Það þarf alltaf að taka tillit til annarra og sérstaklega þegar líður á starfsævina. Fara í tékk, fá sér endurmenntun og fylgjast með.

Þýðir ekki að slugsa

Það þýðir ekki að skella skollaeyrum við, þegar maður fer að vakna 4-5 sinnum á nóttu til að losa ruslið eða ruslið er hætt fara á réttan stað og konan skipar manni að setjast á meðan maður losar. Þá er sko kominn tími til að láta tékka á PSA (Pissa Standandi Alltaf), sé það komið upp á rauða strikið þá er stutt í áminningu. Það er í sjálfu sér ekki svo slæmt að fá áminningu ef hægt er að komast hjá því að vera lækkaður í tign, það er hvort sem er frekar rólegt í bankanum. Þess vegna vill minn maður benda kollegum sínum á, hvort sem þeir eru með mottu eða ekki, að bíða ekki með að fara í tékk, það þýðir ekki að slugsa eitthvað í vinnunni þó að það sé rólegt að gera.

Minn prívatbankastjóri byrjaði tiltölulega ungur í starfsþjálfun og stóð sína plikt með reisn. Þrjú meiriháttar verkefni komu á hans borð og komandi kynslóðir eiga eftir að minnast afreka hans með hlýhug og þakklæti fyrir að vera til.

P.S. Minn hefur heyrt að það sé nóg að gera í hjálpartækjabankanum og hver veit nema það megi ræða samruna við gamla sæðisbankann, kennitalan er enn til.

*200-220 karlmenn eru árlega greindir með krabbamein í blöðruhálskirtli. 60 brottnámsaðgerðir eru gerðar á Lansanum á ári og 18-20 deyja úr þessu krabbameini árlega.




Skoðun

Skoðun

Stöðvum hel­víti á jörðu

Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Sjá meira


×