Tónlist

Tónlistardívur saman á sviði

Emilíana Torrini
Emilíana Torrini Mynd/einkasafn
Heyrst hefur að Emilíana Torrini og Lay Low ætli að taka lagið saman á Hlustendaverðlaunahátíðinni sem fram fer þann 21. mars. Þetta verður í fyrsta skipti sem þær munu deila sviði hér á landi en þær urðu góðar vinkonur er Lay Low ferðaðist með henni árið 2010.

Óhætt er að segja að áhugavert verður að heyra hvaða lag þær taka saman. Báðar eru þær tilnefndar sem besta söngkona ársins og verður því án efa eftirminnilegt að sjá þær saman á sviði.

Hlustendaverðlaunin verða í beinni útsendingu á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×