Meira um nám áfengis-og vímuefnaráðgjafa Hulda M. Eggertsdóttir skrifar 6. mars 2014 06:00 Ráð Rótarinnar skrifar grein í Fréttablaðið 14. febrúar 2014 sem svar við grein sem birt var 6. febrúar 2014 í sama blaði um nám áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Mig langar að benda á grein mína á saa.is sem birtist í Morgunblaðinu 1. febrúar 2014 þar sem er farið ofan í hvernig náminu er háttað. Þegar ráðgjafarnemar hafa lokið kynningarviku og eru ráðnir í starfsnámið þá fá þeir afhent mjög ítarlegt hefti um hvernig starfsnáminu er háttað. Strax í byrjun eru markmið um hvað þarf að læra og ná færni í. Viðkomandi er með leiðbeinenda sem kennir, sýnir og hjálpar nemanum. Ráðgjafastarfið hefur þróast og er ungt fag innan heilbrigðisstéttarinnar. Áfengis- og vímuefnaráðgjafar fengu löggildingu frá landlækni 2006 eftir mikla baráttu. Enn er fólk að kalla sig áfengis-og fíkniráðgjafa og öðrum eins nöfnum en hafa ekki löggildingu og starfa því ekki undir landlækni. Það er eins og fólk má kalla sig galdralækni en lög um heilbrigðistarfsmenn ná ekki yfir galdralækna eins og heimilislækna. Ýkt dæmi. Í byrjun var þetta áhugasamt fólk sem flest hafði einhverja reynslu sjálft af áfengis- og vímuefnavanda og vildi hjálpa alkóhólistum. SÁÁ eru grasrótarsamtök sem voru stofnuð af svoleiðis fólki. Síðustu 37 árin hefur meðferðin þróast, vísindum hefur fleygt fram. Það sem áður voru tilgátur er hægt að sjá á mynd af heilanum. Hugmyndafræði og meðferðarvinnu hefur fleygt fram í heiminum og við gerum meiri kröfur um þekkingu og menntun okkar fólks. Það er ekki rétt að allir ráðgjafar séu alkóhólistar og meðferðin sé byggð á AA. Við kynnum og tölum vel um AA-samtökin í meðferðinni þó að AA séu sjálfshjálparsamtök því reynsla og rannsóknir hafa sýnt að með því að fara í fulla meðferð og svo inn í AA þá næst betri árangur. Það er ætlast til þess af SÁÁ að þeir sem vinna hjá stofnuninni og hafa átt við þennan sjúkdóm að stríða sinni sínum bata og stundi AA-fundi. Sumir ráðgjafar eru ekki alkóhólistar. Þeir þurfa ekki að stunda neina fundi en það er mikilvægt að þeir kynni sér þessi sjálfshjálparsamtök svo þeir viti eitthvað um þau.Starfsnámið Mig langar aðeins að útskýra hvernig starfsnám virkar til að útskýra námið okkar. Til þess að fá löggildingu þarf 300 fræðslutíma, 200 handleiðslutíma, að standast þrjú próf með einkunnina 7 um meðferðarhugmyndir, viðtalatækni, afeitrun og lyfjafræði, og 6.000 klst. inni á meðferðarstofnum sem samsvarar þremur árum. Þó svo að fræðslutímarnir séu 300 fyrirlestrar að lágmarki um fagið þá er miklu meira á bak við þetta. Þegar maður lærir annað starfsnám eins og til dæmis háriðn þá er búið að flokka niður í bóklegt í skóla og verklegt. Í bóklega hlutanum sem fer fram inni í skóla eins og Tækniskólanum þá er samt sem áður lítill hluti námsins kenndur upp úr bókum. Nemendur klippa, greiða, setja permanent og æfa sig undir handleiðslu kennara. Það er eins með þetta nám. Við viljum að þetta nám sé á háskólastigi, við teljum okkur vera að læra þetta með þann metnað fyrir augum. Ég tel að við höfum fengið þjálfun í okkar starfsnámi í viðtalstækni og þekkingu um alkóhólisma sem aðrir heilbrigðisstarfsmenn fá ekki í háskólum, eftir ákveðnum viðurkenndum hugmyndum eins og „motivational interviewing“. Í raun ætti SÁÁ-skólinn að setja upp kúrsa sem kenna læknum, hjúkrunarfræðingum, félagsráðgjöfum, sálfræðingum og fleira háskólamenntuðu fólki þessa þætti, viðtalstækni og þekkingu á alkóhólisma. Við viljum fá viðurkenningu á starfi okkar, þekkingu og færni á þann máta. Ég skil ekki hvatann til að gera lítið úr öllu sem við höfum náð í gegn og erum að gera. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun