Lífshættuleg skordýrabit – ofnæmislost Björn Rúnar Lúðvíksson og Egill R. Sigurgeirsson skrifar 12. apríl 2014 07:00 Nú þegar vor er í lofti er lífríkið á miklu flugi. Tilhugalíf fugla með tilheyrandi söng og hreiðurgerð minnir okkur á þau undur sem ávallt eiga sér stað á þessum skemmtilega árstíma. En það eru ekki bara fuglarnir sem fara á stjá heldur fer að styttast í að geitungar og býflugur fari að huga að sínum búum. Fyrir okkur flest þá eru þau nokkuð meinlítil, og í flestum tilvikum velkomin viðbót við öll þau litbrigði sem lífríkið býður upp á en fyrir suma getur stunga orsakað á svipstundu lífshættuleg ofnæmisviðbrögð. Ofnæmi vegna skordýrabits á Íslandi stafar í langflestum tilvikum vegna bits æðvængna (hymenoptera) en það eru geitungar (hús-, trjá- og roðageitungar), humlur (mó-, garð- og húshumla) og býflugur (alibýfluga). Á hverju ári valda slík bit lífshættulegum einkennum hjá fjölda fólks um heim allan og í undantekningartilvikum dauða. Þó börn séu töluvert líklegri til að vera stungin en fullorðnir eru einkenni þeirra almennt vægari. Í Bandaríkjunum er talið að lífshættuleg einkenni eigi sér stað í 1:150 stungutilvika meðal barna, en 3:100 hjá fullorðnum og a.m.k. 50 einstaklingar látist þar árlega vegna ofnæmislosts. Langalgengustu einkennin sem fólk fær við stungu eru staðbundin bólga og ofnæmissvar. Slík einkenni eru ekki lífshættuleg og þurfa ekki á bráðri meðferð að halda. Næsta stig einkenna er þegar fólk fær kláða og útbrot fjarri stungustaðnum. Slík einkenni geta borið með sér áhættu á hættulegri einkennum við endurteknar stungur og því er mikilvægt að leita eftir áliti læknis í slíkum tilvikum. Hættulegustu einkennin eru einkenni um ofnæmislost. Ef um slík einkenni er að ræða á að hringja strax í 112. Undantekningalaust á í slíkum tilvikum að leita eftir áliti sérfræðings í ofnæmissjúkdómum.Lífshættuleg ofnæmiseinkenni eru: Bólgin tunga, munnur eða kok. Erfiðleikar við kyngingu eða tal. Erfiðleikar við öndun eða mæði. Meltingarfæraeinkenni, magakrampar, ógleði eða uppköst. Yfirliðstilfinning eða svimi. Í verstu tilvikum meðvitundarskerðing og öndunarstopp.Meðferð. Meðferð einkenna fer eftir alvarleika þeirra. Ef fólk verður vart við stunguna, þá er hægt að reyna að fjarlægja stungubroddinn varlega án þess að þrýsta á eitursekkinn sem oft er áfastur og kæla stungustaðinn með klaka (á einungis við um býflugur þar sem geitungar og vespur halda þeim eftir stungu og geta því stungið mörgum sinnum í einu). Við vægari einkennum dugir að taka inn ofnæmistöflu (H1 hemjandi lyf) og bera vægt sterakrem á stungusvæðið. Við alvarlegri eftirfarandi einkenni og aðstæður er mikilvægt að komast sem fyrst undir læknishendur og hringja í 112: Þú færð stungu og ert með þekkt bráðaofnæmi þrátt fyrir að vera með adrenalínpenna/EpiPen við höndina ásamt bráðalyfjum sem þú notar strax. Þú færð stungu og færð lífshættuleg svæsin viðbrögð: bólgur í andlit/varir/kok, ofsakláða, öndunarerfiðleika, hósta, verður óglatt, svimar/sundlar eða kaldsvitnar. Þú færð stungu í munn eða kok. Þú færð samtímis margar stungur og líður illa, verður slappur/slöpp eða verður óglatt.Greining á skordýraofnæmi. Eftir að hafa verið metin af ofnæmislækni er sjúkdómsgreining um ofnæmi staðfest með ofnæmishúðprófi og/eða blóðprufu. Ef um staðfest ofnæmi er að ræða og viðkomandi hefur fengið lífshættuleg einkenni þá eiga slíkir einstaklingar að fara í afnæmingu gegn skordýraeitrinu sem um ræðir. Í flestum tilvikum tekur slík meðferð um 3–5 ár, en sumir þurfa á mun lengri meðferð að halda. Flestir sem greinast með skordýraofnæmi hafa ofnæmi fyrir geitungum. Þó eitur þeirra valdi síður ofnæmi en eitur býflugna eru þeir mun árásargjarnari og stinga mun oftar en þær. Þó svo að krossofnæmi geti átt sér stað er það algengara að fólk hafa eingöngu ofnæmi fyrir einni tegund sem grundvallast á ofnæmisprófinu.Helstu áhættuþættir skordýraofnæmis. Við endurteknar stungur aukast líkur á ofnæmi. Því eru býflugnabændur sérstaklega í áhættu fyrir lífshættulegum einkennum. Einnig geta undirliggjandi ofnæmissjúkdómar aukið líkur á því að viðkomandi þrói með sér ofnæmi í kjölfar skordýrabits.Forvarnir skordýrabits. Ekki hegða sér eins og blóm, þ.e. forðast litskrúðugan fatnað og takmarka notkun ilmefna á líkamann. Geitungar sækja í sætindi, ekki drekka úr dósum eða ílátum þar sem þú sérð ekki innihaldið. Fara varlega nærri runnum og við sólpalla þar sem bú geta verið nærri. Vera með hanska og í skóm og síðerma fatnaði og forðast stuttbuxur við garðvinnu. Láta fagmenn um að fjarlægja geitunga- og býflugnabú. Forðast snöggar hreyfingar nærri geitungum og býflugum. Aka með lokaða glugga. Hafa adrenalínpenna ávallt nærri, ef þið hafið staðfest lífshættulegt skordýraofnæmi. Vera með armband eða hálsmen sem segir til um þekkt ofnæmi (MedicAlert). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fagmennska, frumkvæði og frelsi lækna Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Loftslagsbreytingar: tölum um lausnir Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Grænlendingar veiða þorsk frá Íslandi Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Loftslagsbreytingar: tölum um lausnir Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fagmennska, frumkvæði og frelsi lækna Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar