Aukin alþjóða- viðskipti undirstaða lífskjarabóta Hreggviður Jónsson skrifar 12. febrúar 2014 06:00 Í dag fer árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs fram á Hilton Reykjavík Nordica. Umfjöllunarefni þingsins er alþjóðageirinn en undir hann fellur öll sú starfsemi sem ekki er háð aðgengi að náttúruauðlindum með beinum hætti, nýtur ekki samkeppnisverndar og keppir á alþjóðlegum mörkuðum.Alþjóðageirinn býr ekki við vaxtarskorður En til hvers að velta alþjóðageiranum fyrir sér þegar við Íslendingar búum við gjöfular náttúruauðlindir? Sterkar auðlindagreinar hafa jú myndað hryggjarstykkið í verðmætasköpun og útflutningi landsins í langan tíma, enda hefur okkur borið gæfa til að nýta auðlindirnar á sjálfbæran hátt. Það er hins vegar vel þekkt að vöxtur innan þessara greina er takmörkunum háður. Frekari verðmætasköpun og þar með lífskjaraumbætur verða því að koma í ríkari mæli úr öðrum áttum. Þar kemur til kasta alþjóðageirans. Góðu fréttirnar eru þær að við búum enn að ágætum grunni á þessu sviði. Síðastliðin 20 ár hefur sífellt stærri hluti íslensks atvinnulífs keppt með beinum og óbeinum hætti á alþjóðlegum mörkuðum. Fyrirtæki innan alþjóðageirans eiga sér rætur í mörgum greinum og eru jafnframt af ýmsum stærðum og gerðum. Vonandi munu sem flest þeirra eiga eftir að vaxa og dafna hérlendis með því að skapa alþjóðlega samkeppnishæfar vörur og þjónustu.Öflugur mannauður er grunnhráefnið En til þess að fyrirtæki hérlendis geti keppt á erlendum mörkuðum þarf umgjörð atvinnulífsins að vera samkeppnishæf í alþjóðlegum samanburði. Stöðugleiki í efnahagsmálum og rekstrarumhverfi fyrirtækja, ábyrg stjórn peningamála, aðgengi að fjármagni, öflugt nýsköpunarstarf, hagkvæmt skattaumhverfi, skilvirkt regluverk og aðgengi að mörkuðum ráða þar einna mestu. Auðnist okkur að færa þessa þætti til betri vegar er ekki aðeins traustari stoðum skotið undir alþjóðageirann heldur munu allir aðrir hlutar hagkerfisins samhliða njóta umbótanna. Stærsta tækifæri okkar Íslendinga hvað varðar eflingu alþjóðageirans felst þó í uppbyggingu framúrskarandi mannauðs. Til að ná sem bitastæðustum sneiðum á alþjóðlegum mörkuðum þarf að leggja aukinn kraft í eflingu menntunar, rannsókna og nýsköpunar. Án öflugs mannauðs og nýrrar þekkingar nýtist ábati hagfellds fjárfestingar- og rekstrarumhverfis aðeins að hluta. Stefna stjórnvalda í menntamálum kemur þannig til með að ráða úrslitum um langtímasamkeppnishæfni þjóðarinnar og þar með lífskjör í landinu.Sagan sýnir ábata alþjóðavæðingar Frelsi til viðskipta, sér í lagi utanríkisviðskipta, hefur ráðið miklu um efnahagslega framvindu þjóðarinnar. Alþjóðavæðing og aukin utanríkisviðskipti hafa gert okkur kleift að skapa sérhæfingu á ýmsum sviðum og auka verðmæti innlendrar framleiðslu svo um munar. Þetta hefur gjörbreytt öllum sviðum samfélagsins og verið undirstaða þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa orðið vitni að á undanfarinni öld. Leiðir til að viðhalda þessari vegferð næstu áratugina fela í sér eflingu alþjóðageirans – þetta er umfjöllunarefni Viðskiptaþingsins í ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Sjá meira
Í dag fer árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs fram á Hilton Reykjavík Nordica. Umfjöllunarefni þingsins er alþjóðageirinn en undir hann fellur öll sú starfsemi sem ekki er háð aðgengi að náttúruauðlindum með beinum hætti, nýtur ekki samkeppnisverndar og keppir á alþjóðlegum mörkuðum.Alþjóðageirinn býr ekki við vaxtarskorður En til hvers að velta alþjóðageiranum fyrir sér þegar við Íslendingar búum við gjöfular náttúruauðlindir? Sterkar auðlindagreinar hafa jú myndað hryggjarstykkið í verðmætasköpun og útflutningi landsins í langan tíma, enda hefur okkur borið gæfa til að nýta auðlindirnar á sjálfbæran hátt. Það er hins vegar vel þekkt að vöxtur innan þessara greina er takmörkunum háður. Frekari verðmætasköpun og þar með lífskjaraumbætur verða því að koma í ríkari mæli úr öðrum áttum. Þar kemur til kasta alþjóðageirans. Góðu fréttirnar eru þær að við búum enn að ágætum grunni á þessu sviði. Síðastliðin 20 ár hefur sífellt stærri hluti íslensks atvinnulífs keppt með beinum og óbeinum hætti á alþjóðlegum mörkuðum. Fyrirtæki innan alþjóðageirans eiga sér rætur í mörgum greinum og eru jafnframt af ýmsum stærðum og gerðum. Vonandi munu sem flest þeirra eiga eftir að vaxa og dafna hérlendis með því að skapa alþjóðlega samkeppnishæfar vörur og þjónustu.Öflugur mannauður er grunnhráefnið En til þess að fyrirtæki hérlendis geti keppt á erlendum mörkuðum þarf umgjörð atvinnulífsins að vera samkeppnishæf í alþjóðlegum samanburði. Stöðugleiki í efnahagsmálum og rekstrarumhverfi fyrirtækja, ábyrg stjórn peningamála, aðgengi að fjármagni, öflugt nýsköpunarstarf, hagkvæmt skattaumhverfi, skilvirkt regluverk og aðgengi að mörkuðum ráða þar einna mestu. Auðnist okkur að færa þessa þætti til betri vegar er ekki aðeins traustari stoðum skotið undir alþjóðageirann heldur munu allir aðrir hlutar hagkerfisins samhliða njóta umbótanna. Stærsta tækifæri okkar Íslendinga hvað varðar eflingu alþjóðageirans felst þó í uppbyggingu framúrskarandi mannauðs. Til að ná sem bitastæðustum sneiðum á alþjóðlegum mörkuðum þarf að leggja aukinn kraft í eflingu menntunar, rannsókna og nýsköpunar. Án öflugs mannauðs og nýrrar þekkingar nýtist ábati hagfellds fjárfestingar- og rekstrarumhverfis aðeins að hluta. Stefna stjórnvalda í menntamálum kemur þannig til með að ráða úrslitum um langtímasamkeppnishæfni þjóðarinnar og þar með lífskjör í landinu.Sagan sýnir ábata alþjóðavæðingar Frelsi til viðskipta, sér í lagi utanríkisviðskipta, hefur ráðið miklu um efnahagslega framvindu þjóðarinnar. Alþjóðavæðing og aukin utanríkisviðskipti hafa gert okkur kleift að skapa sérhæfingu á ýmsum sviðum og auka verðmæti innlendrar framleiðslu svo um munar. Þetta hefur gjörbreytt öllum sviðum samfélagsins og verið undirstaða þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa orðið vitni að á undanfarinni öld. Leiðir til að viðhalda þessari vegferð næstu áratugina fela í sér eflingu alþjóðageirans – þetta er umfjöllunarefni Viðskiptaþingsins í ár.
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar