Heimsókn forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, í Yasukuni-hof Tatsukuni Uchida skrifar 22. janúar 2014 06:00 Með vísun til aðsendrar greinar sem birtist í Fréttablaðinu þann 16. janúar sl., og rituð er af sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína á Íslandi, Ma Jisheng, langar mig að fara stuttlega yfir nokkrar staðreyndir, en í umræddri grein er hafður uppi áróður sem gæti afvegaleitt lesendur. (Áróðurinn er hluti af hnattrænni herferð Kína til að koma óorði á Japan án tillits til friðelskandi eiginleika japönsku þjóðarinnar.) Þann 26. desember síðastliðinn heimsótti forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, Yasukuni-hofið í Tókýó til að votta virðingu og biðja fyrir sálum allra þeirra sem börðust og féllu fyrir Japan, og til að endurnýja heitið um að Japan skuli aldrei aftur heyja stríð. Í yfirlýsingu Abe sama dag gaf hann skýrt til kynna að tilgangurinn með heimsókninni var alls ekki að votta stríðsglæpamönnum virðingu né bera lof á hernaðarhyggju. Ríkisstjórnir Japans hafa í gegnum tíðina horfst heiðarlega í augu við söguna og ítrekað tjáð djúpa iðrun og beðist einlæglega afsökunar á að hafa valdið fólki frá mörgum þjóðum, einkum í Asíu, gríðarlegu tjóni og þjáningum. Þessari afstöðu er einnig haldið fastlega uppi af ríkisstjórn Abe.Ekki hervaldsstefnuþjóð Frá stríðslokum hefur Japan verið stöðugt skuldbundið til að byggja frjálst, lýðræðislegt og löghlýðið samfélag og lagt sitt af mörkum til að stuðla að friði og velmegun í heiminum. Þessi grundvallargildi og skilningur hafa skotið djúpum rótum meðal japönsku þjóðarinnar sem hluti af sjálfsmynd hennar. Þessi afstaða helst óbreytt. Kína nefnir stefnu Japans í öryggismálum en hún er til þess gerð að bregðast við æ sveiflukenndara ástandi öryggismála umhverfis Japan. Ríkisstjórn Abe hefur einnig skilning á ábyrgðarhlutverki sínu sem hnattrænt afl og er að innleiða stefnu sem hefur það að markmiði að Japan hafi frumkvæði að því að leggja sitt af mörkum til svæðisbundins og alþjóðlegs friðar. Niðurstaðan er sú að Japan er ekki hervaldsstefnuþjóð. Í hnotskurn eru skoðanir sem settar eru fram af kínverska sendiherranum einfaldlega í mótsögn við sögu Japans eftir stríð og þjóðareinkenni. En á sama tíma vonumst við innilega til að geta bætt samskipti okkar við Kínverja með samræðu um okkar sameiginlegu og betri framtíð Asíu og víðar. Dyrnar standa ætíð opnar af hálfu Japans, og við vonum einlæglega að Kína muni koma til samræðna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Með vísun til aðsendrar greinar sem birtist í Fréttablaðinu þann 16. janúar sl., og rituð er af sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína á Íslandi, Ma Jisheng, langar mig að fara stuttlega yfir nokkrar staðreyndir, en í umræddri grein er hafður uppi áróður sem gæti afvegaleitt lesendur. (Áróðurinn er hluti af hnattrænni herferð Kína til að koma óorði á Japan án tillits til friðelskandi eiginleika japönsku þjóðarinnar.) Þann 26. desember síðastliðinn heimsótti forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, Yasukuni-hofið í Tókýó til að votta virðingu og biðja fyrir sálum allra þeirra sem börðust og féllu fyrir Japan, og til að endurnýja heitið um að Japan skuli aldrei aftur heyja stríð. Í yfirlýsingu Abe sama dag gaf hann skýrt til kynna að tilgangurinn með heimsókninni var alls ekki að votta stríðsglæpamönnum virðingu né bera lof á hernaðarhyggju. Ríkisstjórnir Japans hafa í gegnum tíðina horfst heiðarlega í augu við söguna og ítrekað tjáð djúpa iðrun og beðist einlæglega afsökunar á að hafa valdið fólki frá mörgum þjóðum, einkum í Asíu, gríðarlegu tjóni og þjáningum. Þessari afstöðu er einnig haldið fastlega uppi af ríkisstjórn Abe.Ekki hervaldsstefnuþjóð Frá stríðslokum hefur Japan verið stöðugt skuldbundið til að byggja frjálst, lýðræðislegt og löghlýðið samfélag og lagt sitt af mörkum til að stuðla að friði og velmegun í heiminum. Þessi grundvallargildi og skilningur hafa skotið djúpum rótum meðal japönsku þjóðarinnar sem hluti af sjálfsmynd hennar. Þessi afstaða helst óbreytt. Kína nefnir stefnu Japans í öryggismálum en hún er til þess gerð að bregðast við æ sveiflukenndara ástandi öryggismála umhverfis Japan. Ríkisstjórn Abe hefur einnig skilning á ábyrgðarhlutverki sínu sem hnattrænt afl og er að innleiða stefnu sem hefur það að markmiði að Japan hafi frumkvæði að því að leggja sitt af mörkum til svæðisbundins og alþjóðlegs friðar. Niðurstaðan er sú að Japan er ekki hervaldsstefnuþjóð. Í hnotskurn eru skoðanir sem settar eru fram af kínverska sendiherranum einfaldlega í mótsögn við sögu Japans eftir stríð og þjóðareinkenni. En á sama tíma vonumst við innilega til að geta bætt samskipti okkar við Kínverja með samræðu um okkar sameiginlegu og betri framtíð Asíu og víðar. Dyrnar standa ætíð opnar af hálfu Japans, og við vonum einlæglega að Kína muni koma til samræðna.
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun