Lífið

Hápunkturinn að sofa í snjóhúsi

Páll Ásgeir Ásgeirsson er annar fararstjóra í ferðinni.
Páll Ásgeir Ásgeirsson er annar fararstjóra í ferðinni. MYND/Úr einkasafn
„Í Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness er sagt frá svaðilför Bjarts í Sumarhúsum þar sem hann ætlaði að handsama hreindýr og stökk á það. Hann sundreið svo þessu dýri yfir Jökulsá á Fjöllum og var þá kominn inn í óbyggðir. Á leiðinni aftur til byggða sefur hann í fönn til að koma sér í gegnum nóttina. Til þess að komast af, dregur hann fram blóðmörskepp sem var þá gaddfreðinn og stakk inn á sig beran til að þíða keppinn,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, annar fararstjóra í skíðaferð um páskana, sem heitir Með blóðmör á berum sér og er á vegum Ferðafélags Íslands.

Í ferðinni koma þátttakendur til með að ganga upp í Tindfjöll frá innsta bæ í Fljótshlíð – upp í gamlan skála, sem er í um það bil þúsund metra hæð. Að sögn Páls mun hópurinn setja þar upp búðir og eyða páskunum.

„Það sem er einnig dálítið skemmtilegt við þessa ferð er það að við ætlum að eyða páskunum í að byggja okkur snjóhús til að sofa í og þannig verður þetta eins og lítið námskeið í snjóhúsabyggingu,“ útskýrir Páll, en bætir við að það sé öryggi í því að vera við skálann.

„Ef veðrið verður óviðráðanlegt þá getum við flúið í húsaskjól með páskasteikina,“ segir Páll, léttur í bragði.

„Ég vona þó að til þess komi ekki – það hlýtur að vera hápunktur ferðarinnar að sofa í snjóhúsi sem maður býr sjálfur til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.