Stærsta líkamsræktarstöð í heimi Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 7. janúar 2014 13:00 Stefán Gíslason í Landmannalaugum við upphaf Laugavegshlaupsins í fyrrasumar. Þar náði hann sínum langbesta tíma, 5:52:33 klst, og sigraði í aldursflokknum 50+. mynd/Birkir Þór Stefánsson
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur gaf sjálfum sér 50 fjallvegahlaup í fimmtugsafmælisgjöf. Tilgangurinn var að halda kroppnum í formi á sextugsaldrinum. Hlaupin hugðist Stefán fara á áratug og nú bíða hans 16 ófarnar leiðir á næstu þremur árum. „Fjallvegahlaup eru landkönnun um ókunnar slóðir og mér hefur þótt sláandi að uppgötva hversu Íslendingar eiga gott að hafa stærstu líkamsræktarstöð heims við tærnar á sér,“ segir Stefán um upplifun sína á hlaupum yfir íslenska fjallvegi. Fjallvegahlaupin eru afmælisgjöf Stefáns til sjálfs sín í tilefni fimmtugsafmælis hans árið 2007. „Verkefnið hefur þríþættan tilgang; að halda mér í formi á sextugsaldrinum, kynnast landinu betur og vekja áhuga annarra á útivist og hreyfingu,“ útskýrir Stefán sem skilgreinir fjallvegi sem gamlar göngu- eða reiðleiðir sem tengja saman tvö byggðarlög eða áhugaverða staði, en einnig fáfarna bílvegi (F-vegi). Fjallvegirnir fimmtíu eru lægst í 160 metra hæð yfir sjávarmáli, minnst 9 kílómetrar að lengd og ekki lengri en 70 kílómetrar. „Mér hefur alltaf þótt gaman að vera úti við og fjallvegahlaupin sameina líkamsrækt, náin kynni af fáséðum náttúruperlum og skemmtilegt grúsk í heimildum. Áður en ég fer af stað skrifa ég leiðarlýsingar um fjallvegina og síðan ferðasögur að hlaupi loknu. Fjallvegir geyma gjarnan mikla sögu, sumir eru frægir úr Íslendingasögum og aðrir úr nútímabókmenntum eins og Snjáfjallahringurinn norðan Ísafjarðardjúps í skáldskap Jóns Kalmans. Slíkar tengingar gera hlaupin enn ánægjulegri, og eins og Tómas Guðmundsson sagði yrði landslag lítils virði ef það héti ekki neitt.“Stefán á Heiðarvaði í Hrútá inn af Fáskrúðsfirði í sólskinsveðri og miklum leysingum, á leið niður af Stuðlaheiði milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.mynd/Sævar SkaptasonStefán á nú þrjú sumur í að ná takmarki sínu og sextán fjallvegi. „Erfiðust var Gaflfellsheiði frá Ljárskógum í Dölum norður í Bitrufjörð á Ströndum, alls 38 kílómetrar. Þar fengum við óvænt mikinn mótvind, kulda og rigningu í fangið og mikið streð að ljúka hlaupinu í þoku og leiðindum.“ Stefán segir fjallvegahlaup léttari en keppnishlaup en að þau reyni mikið á styrk fóta þar sem undirlag sé sums staðar stórgrýtt og óslétt. „Fjallvegahlaup eru langt í frá hættulaus ef veður breytist skjótt. Sumar leiðir eru afskekktar, óaðgengilegar og enginn bílvegur nærri fari eitthvað úrskeiðis. Sjálfur nota ég gps-punkta til að rata um óstikaðar leiðir og eftir því sem fram vindur lærir maður meira um nauðsynlegar öryggisráðstafanir á ferðum sem þessum,“ segir Stefán, sem er fæddur og uppalinn í Gröf í Bitrufirði og veit hvernig náttúruöflin virka. „Ég hef meðal annars lent í óvæntum uppákomum á hlaupunum, villst af leið og lent í klettum sem vissulega skelfdi mig en ég gat komið mér út úr af sjálfsdáðum.“ Stefán kveðst á margan hátt ríkari eftir að hann hóf að hlaupa um fjallvegi. „Hlaupin gefa mér margt; náttúruupplifun, félagsskap, útivist, ferskt loft og gott líkamlegt ástand. Þau eru heilsubætandi og fjallamennsku fylgir frelsistilfinning og mikil andleg og líkamleg vellíðan.“ Arnarvatnsheiði er lengsta ófarna leiðin á lista Stefáns. „Reindalsheiði á Austfjörðum er líklega sú alskemmtilegasta hingað til. Leiðin liggur frá Fáskrúðsfirði suður í Breiðdal, himinhátt í tilkomumiklum fjöllum og krefjandi með snjó í toppnum og bröttum brekkum í stórkostlegri náttúrufegurð,“ segir Stefán.Þeim sem vilja hlaupa íslenska fjallvegi með Stefáni er bent á www.fjallvegahlaup.is og Fjallvegahlaup á Facebook. Þar er ýmis fróðleikur, ferðaáætlanir og ferðasögur með myndum.
Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Sjá meira