Þessi grátbroslegi heimur sem við lifum í Þórður Ingi Jónsson skrifar 23. september 2014 00:01 Leigh segist halda sig innan stefnu raunsæisins. „
Ég hlakka mikið til að koma til landsins, ég hef aldrei komið áður,“ segir Mike Leigh, hinn víðfrægi breski leikstjóri sem verður einn heiðursgesta á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem hefst í næstu viku. Aðspurður um hvort hann sé með einhverja áætlun, segir Leigh: „Nei, að vera með eitthvað plan væri ansi hrokafullt, held ég.“ Leigh hóf störf í leikhúsi á sjöunda áratugnum en í dag er hann einn virtasti núlifandi leikstjóri heims. „Lundúnarborg Leighs er jafn sérstæð og Rómarborg Fellinis eða Tókyó Ozus,“ var ritað um myndir Leighs í New York Review of Books á sínum tíma. Á RIFF verða sýndar nokkrar gamlar myndir eftir Leigh; Naked, Life Is Sweet og Topsy-Turvy, ásamt nýju myndinni hans Mr. Turner. Myndin fjallar um ævi og störf breska málarans J.M.W. Turner. „Sem málari er hann einstakur og list hans er ótrúleg og mjög sérstök,“ segir Leigh, aðspurður um ástæðuna fyrir því að hann laðaðist sérstaklega að Turner. „Hann er bæði einn besti enski málari allra tíma og einfaldlega einn besti málari allra tíma yfir höfuð. Síðan bjóða málverkin hans upp á mjög myndræna meðhöndlun. Hann er mjög „sinematískur“ málari. Síðan er hin hliðin af teningnum, sem er persónan Turner. Sérvitur, flókinn og mótsagnakenndur fýr. Spennan milli mannsins og þessara ótrúlegu, epísku og háleitu verka finnst mér mjög áhugaverð. Það kallaði eiginlega á að gera mynd um hann.“ Persónusköpunin í handritum Leigh er unnin á harla óhefðbundinn hátt en hann skapar eiginlega persónurnar ásamt leikurunum með löngu ferli rannsókna, umræðna og spuna. Timothy Spall sem leikur Turner eyddi til dæmis tveimur árum með myndlistarkennara sem kenndi honum að mála. Myndir Leighs eru ekkert léttmeti en þær hafa oft einhverja djúpstæða merkingu. „Ég myndi segja að það sem þessi mynd eigi sameiginlegt með hinum myndunum mínum er það að hún er að einhverju leyti um siði og venjur samfélagsins, um sambönd fólks, um utangarðsmenn og fólk sem brýst frá „norminu“ og því sem er sjálfgefið." Leigh kom að einhverju leyti út úr bresku menningarstefnunni „kitchen-sink realism“ á sjöunda áratugnum, eins konar félagslegu raunsæi sem lagði áherslu á lægri stéttir samfélagsins. En hversu mikilvægt er raunsæið fyrir Leigh? „Ég reyni að gera mismunandi kvikmyndir en aðeins innan stefnu raunsæisins. Fyrir mig er það mjög náttúrulegt að taka myndavélina og beina henni að heiminum, sem er mjög flókinn og spennandi. Mig langar ekki að beina henni neitt annað – það gæti verið að ég horfi á heiminn í gegnum mismunandi linsur og prisma. Aðalmálið er að endurspegla þennan grátbroslega heim sem við lifum í.“Myndin er dökk en jafnframt gullfalleg innsýn í líf týndrar sálar.Fleiri Mike Leigh myndir á RIFF:Naked (1993) Naked fjallar um ógeðfelldan en gáfaðan ungan mann sem flýr frá Manchester til London til að flýja undan barsmíðum eftir að hafa nauðgað stúlku. Naked er dökk innsýn í líf týndrar sálar en myndin hlaut fjölda verðlauna á sínum tíma.Topsy-Turvy (1999) Myndin fjallar um Gilbert og Sullivan, leikritahöfundinn og tónskáldið sem unnu saman á Viktoríutímanum. Nýjasta leikrit teymisins fær hrikalegar viðtökur en síðan hefja þeir störf á meistaraverkinu Míkadó.Life Is Sweet (1990) Dramatísk gamanmynd um harla sérvitra fjölskyldu norður fyrir Lundúnum. Timothy Spall, sem leikur aðalhlutverkið í Mr. Turner, leikur í myndinni eins og mörgum öðrum myndum Leigh.
Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Auður segir skilið við Gímaldið Menning Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Fleiri fréttir Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn Sjá meira