„Mjög pirrandi að sjá svona“ Álfrún Pálsdóttir skrifar 17. september 2014 16:30 Þórunn Árnadóttir hönnuður er ekki ánægð með að búið sé að gera eftirlíkingu af kertinu hennar, Pyro Pet, en erfitt er fyrir hönnuði að koma í veg fyrir svoleiðis. „
Mér finnst þetta ekki vera heiður og bara mjög pirrandi að sjá svona eftirlíkingar,“ segir hönnuðurinn Þórunn Árnadóttir, sem á heiðurinn af Pyro Pet, kisukerti sem er sérstakt að því leytinu til að þegar það brennur niður birtist beinagrind úr áli. Kertið hefur vakið mikla lukku út um allan heim en nýverið fékk Þórunn ábendingu frá stórum dreifingaraðila um að búið væri að gera eftirlíkingu af kertinu hennar. Eftirlíkingin er bangsakerti sem nefnist Skeleton Candles og breytist einmitt í beinagrind úr áli. Líkindin eru sláandi en Þórunn safnaði fyrir framleiðslu Pyro Pet á Kickstarter og er það sama leið og fólkið á bakvið eftirlíkinguna er að fara. „Mér finnst mest skrítið að Kickstarter hafi hleypt þessu í gegn hjá sér, ég er í góðu sambandi við fólkið þar sem öll keyptu sér kisukertið á sínum tíma og hrósuðu hönnuninni. Það er leiðinlegt þegar svona kemur upp og sérstaklega þar sem Pyro Pet er á viðkvæmu stigi núna, fyrsta sending er uppseld en von á næstu í byrjun október.“ Kisukertin hennar Þórunnar hafa heldur betur slegið í gegn og eru nú seld út um allan heim, meðal annars í búðinni Urban Outfitters. Upphaflega ætlaði Þórunn að safna fyrir framleiðslu á fjögur þúsund kertum en hefur nú selt um 10 þúsund stykki. „Sem betur fer hefur okkur tekist að koma Pyro Pet það vel á framfæri síðasta árið að við höfum verið að fá ábendingar um eftirlíkinguna frá viðskiptavinum okkar. Það er gott og ég vona að það haldist þannig, það væri ekki gaman ef kertið verður eitt af mörgum alveg eins.“
Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira