Skólinn heitir eftir litháísku fánalitunum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. september 2014 12:00 Jurgita bar fram fína köku og mikið var um dýrðir þegar skólinn var settur 7. september síðastliðinn. „
Þetta er krefjandi en samt líka mjög gefandi og það er ástæða þess að ég endist svona lengi.“ Þetta segir Jurgita Milleriene um starf sitt sem skólastjóri litháíska móðurmálsskólans Þrír litir síðustu tíu ár. Jurgita stofnaði skólann fyrir tíu árum í Alþjóðahúsinu og hefur kennt litháískum börnum móðurmál sitt í sjálfboðavinnu síðan. Nú fer kennslan fram í Landakotsskóla á sunnudögum, frá tólf til hálf tvö, og Jurgita segir samstarfið við kirkjuna og prestinn mjög gott.En af hverju heitir skólinn Þrír litir? Skýringin er sú að litháíski fáninn er gulur, grænn og rauður og nafn skólans tengist þessum þremur litum. Jurgita er leikskólakennari í Reykjanesbæ að atvinnu og þarf því að keyra til Reykjavíkur á hverjum sunnudegi frá september fram á vor að undanskildum jóla- og páskafríum. „Já, ég þarf að vakna snemma á sunnudögum,“ segir hún glaðlega. Tekur líka fram að kennarar skólans séu fimm og allir með BA-háskólagráðu, auk þess að hafa sótt ýmiss konar námskeið bæði hér á landi og erlendis. „Starfsemi skólans blómstrar og kennslan er vel skipulögð og fagleg.“ Nemendurnir í Þremur litum eru frá höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélögum í kring, svo sem Akranesi, Mosfellsbæ, Selfossi og Reykjanesbæ, að sögn Jurgitu. „Þegar við byrjuðum voru nemendurnir 35 en þeim hefur fjölgað og eru nú hátt í fimmtíu. Þeim er skipt í fimm aldurshópa frá tveggja til tíu ára og eldri. En auðvitað eru börnin misjafnlega á vegi stödd í sínu móðurmáli, það fer ekki bara eftir aldri. Sum skilja bara málið en önnur geta talað, skrifað og lesið og því er kennslan einstaklingsmiðuð í raun og veru.“ Árið 2008 var stofnað Félag Litháa á Íslandi og þá varð skólinn Þrír litir hluti af starfsemi félagsins. Þess má geta að sýning um Litháen og litháíska móðurmálsskólann verður opnuð í Kringlusafni Borgarbókasafnsins þann 20. september.
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira