Auglýsingastefið sem allir eru að tala um Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. júní 2014 09:00 Hólmfríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Hófí syngur lagið It Has To Be You, sem Pétur Jónsson samdi upphaflega fyrir auglýsingu. Lagið hefur fengið mikla athygli. vísir/daníel „
Ég hef fengið rosalega góð viðbrögð við laginu, og í raun vonum framar,“ segir hin 22 ára gamla söngkona, Hólmfríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Hófí, en hún var fengin til þess að syngja lagstúf sem notaður var í Egils Kristal auglýsingu, en sökum mikillar eftirspurnar var lagstúfurinn gerður að fullgerðu lagi sem komið er nú í spilun. Lagið ber titilinn It Has To Be You og samdi Pétur Jónsson lag og texta. „Pétur hafði samband við mig í janúar og fékk mig til þess að syngja þennan lagstúf fyrir auglýsinguna, þetta var í raun bara stef. Þegar stefið var komið í loftið, varð mikil eftirspurn eftir laginu og var því ákveðið að gera fullgert lag úr stefinu,“ útskýrir Hófí. „Ég bjó til 45 sekúndna langt lag eins og venjan er fyrir auglýsingar en svo var fólk farið að senda pósta um hvar hægt væri að finna lagið og þá var ákveðið að klára lagið. Þetta er í raun eins og að þú sért búinn að baka eina köku en svo koma 20 manns í viðbót, þá þarf að baka meira og kakan þarf að vera jafn góð,“ segir tónlistarframleiðandinn Pétur Jónsson um lagið.Pétur JónssonMynd/Guðni EinarssonHófí segir þau upphaflega hafa kynnst þegar hún söng bakraddir fyrir hljómsveitina Feldberg en þá lék Pétur á bassa. „Pétur er frábær náungi og það er mjög gott að vinna með honum,“ bætir Hófí við. Hún stundar nám í djasssöng við tónlistarskóla FÍH og hefur í hyggju að starfa við tónlist í framtíðinni. „Ég er nú ekki í hljómsveit eins og er en mig langar gjarnan að semja meiri músík sjálf og stefni að því.“ Fyrir utan tónlistina starfar Hófí á leikskóla. „Ég stýri oft söngstundunum í leikskólanum og það er ansi gaman,“ segir Hófi og hlær. Frekara samstarf Hófíar og Péturs er ekki staðfest að svo stöddu en Hófí ætlar sér þó stóra hluti í framtíðinni. Pétur Jónsson er vel kunnur tónlistarbransanum og hefur samið og pródúserað ýmsa tónlist sem fólk hefur heyrt víðs vegar. Þekkt tónlist sem Pétur hefur unnið að er til dæmis lagið Betri en þú, sem notað var í Lambakjötsauglýsingunum á síðasta ári en Sigríður Thorlacius og Bogomil Font sungu lagið. Lagið Big sem notað var í Vodafone-auglýsingum árið 2009. Þá hefur hann einnig unnið að gerð fjölda kvikmyndastikla og nú síðast fyrir Vonarstræti.Hér má sjá fleiri verk Péturs.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Richard Riehle látinn Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira