Úkraínska litabyltingin nr. 2 sem bandarísk stjórnvöld fjármögnuðu Þorsteinn Sch. Thorsteinsson skrifar 31. október 2014 07:00 Þar sem litabyltingin mistókst árið 2004 var núna 10 árum síðar gerð önnur litabylting til að reyna að koma inn fólki til að koma á breytingum í landinu. Á fundi hjá Chevron-olíufyrirtækinu þá opinberaði Viktoría Nuland, aðstoðarutanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, að stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu eytt 5 milljörðum dollara í að koma stjórnvöldum í Úkraínu frá völdum. Þessi ræða Viktoríu er reyndar til í heild sinni, svo og frægt samtal Viktoríu við Geoffrey Pyatt þar sem þau bæði skipulögðu og settu saman þessa líka strengjabrúðuríkisstjórn landsins eins og hún er við völd í dag, fyrir utan það að kosning um forseta hefur síðan farið fram. Það er hins vegar ekkert nýtt að stjórnvöld í Bandaríkjunum standi fyrir því að koma á litabyltingum með því að greiða mótmælendum. Þá höfum við dæmi um aðrar litabyltingar er stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa staðið fyrir eins og t.d. í Serbíu, Georgíu og Kirgisistan. Það sem er kannski nýtt við þessar litabyltingar er að núna nutu þeir aðstoðar nýnasistahópanna Right Sector og Svoboda er halda opinberlega uppi merkjum nasista.Skýrslur ekki birtar Samkvæmt frásögn Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands, þá skutu þessar sömu leyniskyttur á bæði lögreglumenn og mótmælendur á Maidan-torginu, og allt til þess eins að magna upp ástandið. Nú, og eftir þessari frásögn Urmas, sem höfð var eftir lækni er skoðaði eitthvað af öllum þessum 94 fórnarlömbum, þá hafa nýskipuð stjórnvöld ekki viljað rannsaka þetta mál. Eftir að nýskipuð ríkisstjórn Úkraínu ásamt nýnasistum tók völdin og úkraínska var lýst opinbert tungumál landsins, og öll rússneska allt að því bönnuð, versnaði ástandið mun meira. Mótmælin í Odessa þann 2. maí sl. eru annað dæmi um það hversu langt þessir nýnasistar eru tilbúnir að ganga, þar sem þessir nasistar smöluðu mótmælendum inn í skrifstofubyggingar og kveiktu í þeim, þannig að yfir 48 manns létu lífið. Þrátt fyrir að mörg vitni hafi lýst þessum atburðum í Odessa, þá hafa skýrslur ekki verið birtar, og líklegast á þetta mál eftir að enda í sama farvegi og öll 94 morðin á Maidan-torgi, eða þar sem skýrslur verða aldrei birtar.Lygaáróður Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og í fjölmiðlum lýstu nýskipuð stjórnvöld Úkraínu því yfir að 16 þúsund manna herlið hefði hertekið Krímskaga, þegar 16 þúsund manna herlið er og hefur verið á Krímskaga í meira en 10 ár skv. samkomulagi. En í öllum þessum lygaáróðri var ekkert minnst á þá staðreynd að heimastjórn Krímskaga hefði ákveðið að reka úkraínska herinn í burtu og hefja atkvæðagreiðslu, þar sem íbúar skagans vildu ekki þessa ríkisstjórn, og höfðu auk þess óskað eftir leiðréttingu, því að í meira en 200 ár tilheyrði Krímskagi og héruðin Donetsk og Luhansk Rússlandi, en þegar Khrústsjov tróð Krímskaga inn í Úkraínu árið 1954 þá var það gert án samþykkis íbúa Krímskaga. Í stað þess að styðja rússneskumælandi fólk á Krímskaga til að tengjast aftur sinni eigin 200 ára sögu og menningu, þá öskra menn hér að Rússar séu að reyna að endurreisa Sovétríki, og það ofan á allt þegar vitað er til þess að OECD fann ekkert að þessari atkvæðagreiðslu. Með lygum er síðan aftur og aftur reynt að koma því inn að Rússar hafi gert innrás í Úkraínu, og með þessum líka gömlu gervihnattamyndum frá ágúst 2013 sem sagðar eru vera glænýjar, ásamt öðrum myndum sem sérfræðingar segja að séu komnar beint úr tölvuleikjum. Menn eru á því að þessi litabylting 2014 hafi tekist svona, en framtíð Úkraínu er eftir sem áður ákaflega óljós. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar