Aríur Ingibjargar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 15:30 Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran.
Næstu tónleikar í hádegistónleikaröðinni Klassík í hádeginu í Gerðubergi verða föstudaginn 28. nóvember næstkomandi og sunnudaginn 30. nóvember. Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari er sem fyrr listrænn stjórnandi. Að þessu sinni bera tónleikarnir yfirskriftina Aríur Ingibjargar og mun Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran flytja úrval af uppáhaldsaríum sínum og óperuaðdáenda um allan heim, meðal annars verk eftir Händel, Puccini og Mozart. Ekta klassík í hádeginu. Ingibjörg er söngkennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar sem hún stofnaði árið 2000. Hún hefur gefið út tvær geislaplötur; Óperuaríur (2005) með Sinfóníuhljómsveit Íslands, undir stjórn Gerrit Schuil, og Ó Ó Ingibjörg (2007) þar sem hún syngur íslensk sönglög í frumlegum búningi með bræðrum sínum, djasstónlistarmönnunum Óskari og Ómari. Tónleikarnir verða í Gerðubergi í hádeginu á morgun milli klukkan 12.15 og 13 og á sunnudaginn milli 13.15 og 14.
Menning Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Tíu ráð Höllu fyrir börn sín og þín til bjargar framtíðinni Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Fleiri fréttir Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira