Birta myndband af því þegar lögreglan skaut 12 ára dreng til bana Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 08:09 Tamir Rice var 12 ára gamall.
Lögreglan í Cleveland hefur birt myndband úr öryggismyndavél sem sýnir aðdraganda þess þegar tveir lögreglumenn skutu 12 ára dreng, Tamir Rice, til bana um síðustu helgi. Myndbandið er birt að beiðni fjölskyldu drengsins. Þá hefur lögreglan einnig birt upptöku af símtali í neyðarlínuna sem leiddi til þess að lögreglan kom á staðinn. „Hann dregur byssuna ítrekað upp úr buxunum sínum og miðar henni á fólk,“ segir sá sem hringir meðal annars í símtalinu. Þá er hann sérstaklega spurður út í það hvort Rice sé hvítur eða svartur. Drengurinn hafði verið að leika sér á leikvelli með leikfangabyssu og ekki hlýtt fyrirmælum lögreglunnar um að setja hendur upp í loft. Vegfarandi, sem átti leið hjá leikvellinum, hringdi í lögregluna og lét vita af Rice. Tveir lögreglumenn fóru á vettvang og skaut annar þeirra tveimur skotum sem urðu drengnum að fjörtjóni. Annar lögreglumaðurinn var á sínu fyrsta starfsári en hinn átti að baki meir en áratug í starfi. Lögreglumennirnir hafa verið sendir í leyfi frá störfum og er rannsókn hafin á málinu.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fleiri fréttir Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Sjá meira