Þetta er nýja ísdrottning Íslands Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 24. júní 2014 10:00 Paradís opnar á Njálsgötu á fimmtudag. Mynd/úr einkasafni „
Þetta var mjög krefjandi nám og miklu meira á bak við það en ég ímyndaði mér,“ segir Alexandra Rut Sólbjartsdóttir. Hún hefur nýlokið við ísgerðarnám í Bologna á Ítalíu og opnar ísbúðina Paradís á Njálsgötu á fimmtudaginn. Á Ítalíu lærði hún að gera ekta ítalskan ís frá grunni, svokallaðan gelato. „Ég er útskrifuð úr fyrsta og öðrum bekk í ísgerðarnámi. Ég tók hvorn bekk fyrir sig á einni viku þar sem hver skóladagur var níu klukkutímar – sjö tímar á skólabekk og tveir í eldhúsinu,“ segir Alexandra. Hún og maður hennar, Sveinn Gunnarsson, hafa rekið söluturninn Drekann í þrjú ár sem er við hliðina á Paradís. „Við vorum að leigja húsnæðið út þegar ég fékk hugmynd um að opna ísbúð fyrir stuttu. Ég fékk þessa flugu í hausinn og gat ekki sleppt henni og ákvað að fara beint út í þennan rekstur,“ segir Alexandra. Hún býður upp á alls sextán tegundir í búðinni, tólf mjólkurísa og fjórar sorbet-tegundir. Í vetur hyggur hún síðan á að bjóða upp á vöfflur og ískökur, sem og heimagerð brauðform. Aðspurð hver sé hennar uppáhaldsístegund stendur ekki á svörunum. „Ég er rosalega mikið fyrir súkkulaðiís. Hann er hægt að gera á marga mismunandi vegu og ég er alveg húkkt á honum,“ segir Alexandra og bætir við að hún geti innbyrt afskaplega mikið magn af ís án þess að fitna. „Ég er ein af þeim heppnu sem brenna alveg hrikalega hratt. Þegar ég var á Ítalíu hötuðu mig allir því ég át og át og át. Á Ítalíu kemst maður ekki hjá því að borða endalaust af góðum mat þannig að ég er mjög heppin að geta það,“ segir Alexandra skellihlæjandi. En hvernig er framtíðin hjá ísbúðinni Paradís? „Það eru margir rosalega spenntir fyrir opnuninni þannig að það er eins gott að ég standi mig vel. Ég vona að ísinn minn falli í kramið en ég verð klárlega með besta ísinn á Íslandi sem er gerður alveg frá grunni. Mig langar að sjá hvernig þetta gengur og hver veit nema ég stækki við mig og opni aðra Paradís-búð í framtíðinni.“
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira