Jónsmessuganga á Seltjarnarnesinu 24. júní 2014 11:00 Seltjarnarnes fagnar fjörutíu ára afmæli í ár. vísir/stefán
Hin árvissa Jónsmessuganga á Seltjarnarnesi verður farin í kvöld og er hún með sannkölluðum hátíðarbrag. Förinni er heitið milli stofnana á Seltjarnarnesi sem fagna stórafmæli á árinu rétt eins og bæjarfélagið sjálft en það fagnar 40 ára kaupstaðarafmæli. Dagskráin hefst klukkan 20.00 í Valhúsaskóla, sem einnig er fjörutíu ára, þar sem Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri veitir viðtöku fyrsta eintaki af veglegu afmælistímariti Seltjarnarneskaupstaðar sem verið hefur í vinnslu um nokkurt skeið. Ritinu verður dreift á hvert heimili á Nesinu strax daginn eftir. Í Valhúsaskóla syngur Selkórinn valin lög eftir Gunnar Þórðarson og síðan verður haldið út í sumarnóttina og gengið sem leið liggur að kirkjunni sem fagnar fjörutíu ára safnaðarafmæli og 25 ára vígsluafmæli á árinu. Í göngunni þangað verða 30 ára sögu sundlaugarinnar gerð skil. Golfklúbburinn hélt upp á hálfrar aldar afmæli á árinu og verður gengið frá kirkjunni í átt að golfvellinum. Í fjörunni nærri golfvellinum verður tendraður varðeldur, Bjarki Harðarson mætir með harmonikku, efnt verður til fjöldasöngs, eldlistamaður leikur listir sínar og boðið verður upp á veitingar fyrir unga sem aldna.Stefán Bergmann líffræðingur, sem er flestum mönnum fróðari um Seltjarnarnesið, leiðir gönguna og veitir mönnum án efa gott yfirlit yfir sögu Seltjarnarness fyrr og nú.
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Sjá meira