Chuck Norris er glerharður Baldvin Þormóðsson skrifar 15. apríl 2014 09:30 Vilhjálmur Sanne segir að allir geti fundið sér eitthvað. vísir/gva „
Hugmyndin kviknaði eiginlega þegar ég var að fara að sofa eitt kvöldið,“ segir Vilhjálmur Sanne en hann var að opna veitingastaðinn Chuck Norris Grill á Laugaveginum. „Ég og konan mín vorum að velta fyrir okkur nafni á staðinn og þá datt okkur í hug þetta þema,“ segir Vilhjálmur en flestir hljóta að kannast við brandarana um Chuck Norris og hörku hans. „Við ákváðum í kjölfarið að fara þá leið að leggja mesta áherslu á steikarsamlokurnar,“ segir veitingastaðareigandinn sem bætir því við að á matseðlinum verði ýmiss konar grillmatur ásamt steikarsamlokunum. „Við erum með hamborgarana eins og flestir grillstaðir en okkur fannst vanta fleiri staði sem sérhæfðu sig í steikarsamlokum.“ Staðurinn var opnaður síðastliðinn föstudag og segir Vilhjálmur viðtökurnar hafa verið góðar. „Fólki finnst þetta skemmtilegt, Chuck Norris er náttúrlega glerharður.“ Á bak við staðinn er einnig að finna myndarlegan garð sem Vilhjálmur segir eiga eftir að nýtast vel í sumar þegar sólin fer að skína. „Við erum með nokkur borð og stóla úti en síðan getur fólk líka sest inni eða tekið matinn heim með sér,“ segir Vilhjálmur sem mælir með því að fólk líti inn og grípi með sér eitthvað af grillinu. „Við bjóðum líka upp á góð salöt og steikur, hér geta allir fundið sér eitthvað.“
Mest lesið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Bíó og sjónvarp „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Fleiri fréttir Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Sjá meira