Lýsing byggir á lögum Þór Jónsson skrifar 15. apríl 2014 08:58 Gífuryrði Einars Huga Bjarnasonar hæstaréttarlögmanns um Lýsingu hf. í áskorun hans til þingmanna, sem Fréttablaðið birti 4. apríl sl., um að lengja lögbundinn fyrningarfrest eru honum vissulega ekki til sóma. En lengri fyrningarfrestur er kappsmál lögmanna, sem hafa sérstaklega sóst eftir að reka svokölluð gengislánamál, og í því ljósi er ef til vill skiljanlegt að lögmanninum hlaupi kapp í kinn. Þannig stíluð grein er að jafnaði ekki svaraverð en mér finnst rétt umræðunnar vegna að leiðrétta fullyrðingar í henni sem byggjast á röngum lagaskilningi og misskilningi á dómum Hæstaréttar. 1 Það er til dæmis misskilningur að Lýsing hafi áhrif á það hvort mál fyrnist. Það er á valdi kröfuhafa að slíta fyrningu. 2 Umrædd útreikningsaðferð Lýsingar styðst meðal annars við álit lögmanna og niðurstöður Hæstaréttar í málum nr. 50/2013, 337/2013, 463/2013 og 661/2013 og var síðast staðfest í úrskurði úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki frá 14. mars sl. í máli nr. 90/2013. Fullyrðingar lögmannsins um að endurreikningur Lýsingar sé í andstöðu við dómafordæmi standast því ekki. 3Enn fremur er rétt að fram komi að Lýsing hefur í ýmsum tilvikum gengið lengra í þágu viðskiptamanna sinna en lagaskylda og dómar kveða á um. Því er það rangt sem lögmaðurinn heldur fram að Lýsing beiti iðulega þröngri túlkun. Jafnvel þótt svo væri er það meginregla í lögfræði að undantekningar beri að túlka þröngt.Ekkert fjær sanni Lögmaðurinn hefur um árabil haft óvenjulega mikinn áhuga á Lýsingu. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2011 gaf hann í skyn að Lýsing ætti gjaldþrot á hættu og að viðskiptamenn yrðu að varast að hugsanlegar kröfur á hendur félaginu brynnu inni í búinu. Ekkert er fjær sanni. Lýsing hefur starfað óslitið frá 1986, er með elstu fjármálafyrirtækjum landsins, með sterka eiginfjárstöðu, hefur hvorki þegið ríkisstyrki né lánasöfn á afsláttarkjörum og gekk nýverið í gegnum árangursríka endurfjármögnun. Til marks um öfluga starfsemi má nefna að Lýsing keypti á dögunum Lykil af MP banka. Í sama viðtali í Fréttablaðinu ráðlagði lögmaðurinn viðskiptamönnum fjármálafyrirtækja að hætta að greiða af fjármögnunarleigusamningum sínum, þeir væru „ólögmætir lánssamningar“, og velti fyrir sér hvaða áhrif slíkt „högg“ hefði á starfsemi Lýsingar. Skemmst er frá því að segja að höggið hefur látið standa á sér. Hæstiréttur hefur í tveimur nýlegum dómum, 638/2013 og 717/2013, staðfest lögmæti fjármögnunarleigusamninga Lýsingar og hafnað sjónarmiðum eins og þeim sem lögmaðurinn hélt fram. Hafi einhver fengið högg er það væntanlega sá sem fylgdi ráðgjöf lögmannsins og hætti að greiða af samningum sínum og skuldar nú í ofanálag dráttarvexti frá árinu 2011. Ég ætla samt að stilla mig um gífuryrði og láta við sitja að benda á að mál geti verið afar mismunandi frá einu tilviki til annars, þótt þau kunni í fljótu bragði að virðast hliðstæð, og því er varasamt að gera ráð fyrir að einstök dómsmál svari öllum spurningum um ágreining um inntak samninga í öðrum málum. Jafnframt er vert að hafa í huga að starfsemi Lýsingar á fjármálamarkaði er leyfisskyld og háð ströngum skilyrðum og opinberu eftirliti eins og starfsemi banka og annarra fjármálafyrirtækja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun