Ljótir hálfvitar verða gulldrengir Gunnar Leó Pálsson skrifar 31. maí 2014 15:00 Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir var hæstánægð með gullplötuna sína. vísir/daníel „
Þetta er mjög skemmtilegt, sérstaklega vegna þess að platan kom út árið 2007 og því fyndið að fá þessa viðurkenningu svona mörgum árum seinna,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, meðlimur í hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum. Hún hlaut á dögunum gullplötu fyrir frumraun sína sem kom út árið 2007 en afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Café Rosenberg. „Við óskuðum eftir því að þetta færi fram á Rosenberg því staðurinn hefur alltaf spilað stórt hlutverk í sögu sveitarinnar. Doddi á Rosenberg fékk allar gullplöturnar og lofaði að skrúfa þær upp á vegg fyrir giggið okkar þar í kvöld,“ segir Snæbjörn léttur í lundu. Ljótu hálfvitarnir er með níu meðlimi innanborðs, sem hafa allir verið í sveitinni frá upphafi. „Mórallinn er ótrúlega góður, þetta er líklega einn skemmtilegasti félagskapur sem fyrirfinnst í veröldinni. Við höfum alltaf spilað reglulega en tókum reyndar pásu í um eitt ár, hér um árið.“ Sveitin hefur gefið út fjórar breiðskífur og fyrsta platan hefur selst í yfir fimm þúsund eintökum, sem gefur gullplötu á Íslandi. Sveitin er að norðan, sjö meðlimir teljast til Húsvíkinga en tveir eru úr sveitunum í kring. Þó búa allir meðlimirnir í höfuðborginni í dag. Hljómsveitin vinnur að smíði nýrra laga en möguleg plötuútgáfa er næsta vor. Nafn sveitarinnar kom upp þegar æstur áheyrandi tjáði meðlimum partísveitar, sem rekja má til upphafs hljómsveitarinnar, að þeir væru nú ljótu hálfvitarnir. Ljótu hálfvitarnir fagna gullplötunni með tónleikum á Café Rosenberg í kvöld og þá verður sveitin með tónleika á Græna hattinum á Akureyri um hvítasunnuhelgina.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira