Túlkasjóður Laila M. Arnþórsdóttir skrifar 22. október 2014 14:57 Ég má til með að senda þér Illugi Gunnarsson háttvirtur menntamálaráherra þessar línur þar sem málið er brýnt og þolir ekki bið. Því þannig er það víst að enn og aftur er félagslegi túlkasjóður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra heyrnarskertra uppurinn og tveir og hálfur mánuður í áramót. Hvaða afleiðingar hefur það kann einhver að spyrja jú það hefur miklar og víðtækar afleiðingar ekki bara fyrir þá sem eiga sér táknmál að móðurmáli heldur líka fyrir okkur hin. Reynum því saman að setja okkur í spor annarra t.d barns sem dögum saman hefur undirbúið uppákomu í skólanum sínum mikið hefur verið lagt á sig og bæði skólinn og heimili barnanna tekið þátt í að undirbúa viðburðinn. Loksins stóri dagurinn rennur upp og foreldar og ættingjar safnast saman og spjalla sín á milli fyrir stórsýninguna. En því miður það eru víst ekki allir með, heyrnarlausu foreldrarnir standa hjá en hafa ekki tækifæri til að taka þátt í umræðunum því það er enginn túlkur á staðnum því miður tölum við ekki öll íslenskt táknmál. Sýningin hefst og áhorfendur skemmta sér konunglega eða næstum allir, heyrnarlaus foreldrarnir eru utangátta og án þess að fá að fylgjast með börnunum eða taka þátt í gleðinni það er jú ekki túlkur á staðnum manstu sjóðurinn er búinn . Setum okkur nú smá stund í spor barnsins sem fylgist með það sér að foreldrarnir fá ekki að taka þátt í gleðinni eins og aðrir þau geta ekki verið með. Þetta er sárt upp á að horfa. Hvað fyndist okkur um það ef við neyddumst til að segja okkur úr árshátíðarnefndinni þar sem ríkti bæði gleði og góður móral. Það er víst ekki um annað að ræða, það verður lítið hægt að funda án túlks. Við erum öll að tapa förum á mis við gefandi samskipti og mannauð. Allt hefur þetta áhrif bæði á heyrnarlausa og þá sem þeim standa næst. Þess vegna spyr ég ráðherra er ekki hægt að kippa þessu í liðinn? Er ekki hægt að tryggja að svona gerist ekki aftur að ári. Tryggum virka þátttöku allra. Virðingarfyllst , Laila Margrét Arnþórsdóttir Ráðgjafi félags heyrnarlausra Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Skoðun Rölt að botninum Smári McCarthy skrifar Skoðun Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Málþóf spillingar og græðgi á Alþingi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Lýðskrum Skattfylkingarinnar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Krabbamein – reddast þetta? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Valdið yfir sjávarútvegsmálunum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lummuleg áform heilbrigðisráðherra Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst? Davíð Bergmann. skrifar Skoðun Baráttan um kjör eldra fólks Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Lík brennd í Grafarvogi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Er handahlaup valdeflandi? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Á jaðrinum með Jesú Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Gervigreindin beisluð Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Heiða Ingimarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið Karen Rúnarsdóttir skrifar
Skoðun Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum Arnar Þór Jónsson skrifar