Keyptu hlutabréf á milljarð en seldu þau á 1200 kall Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. október 2014 14:16 Vísir/Pjetur
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem íslenska ríkið var sýknað af kröfu Einars Sveinssonar og konu hans vegna endurálagningu ríkisskattstjóra. Hjónin höfðu á skattframtali ársins 2008 fært sölutap á hlutabréfum í breska félaginu Melrose PLC á móti söluhagnaði vegna hlutabréfa í Glitni. Fram kemur í dómnum að þann 5. apríl 2007 hafi Einar og kona hans selt bréf sín í Glitni fyrir söluhagnað upp á 2,4 milljarða króna. Fjórum mánuðum síðar, þann 16. ágúst, keyptu þau svokölluð C-hlutabréf í Melrose fyrir 7 milljónir punda eða 964 milljónir króna. Glitnir hafði milligöngu um kaupin. Tveimur dögum fyrir kaupin hafði hluthafafundur Melrose samþykkt að greiða út arð til hluthafa. Í tilfelli Einars og eiginkonu hans var arðurinn 7,3 milljónir punda sem samsvaraði 954 milljónum króna. Það var því hagnaður upp á rúm 300.000 pund en tapið nam 10 milljónum króna vegna gengisþróunar. Sama dag og arðgreiðsla vegna Melrose var greidd út seldu Einar og kona hans bréf sín í fyrirtækinu fyrir 10 pund, eða sem samsvarar 1.284 krónum. Á skattframtali sínu árið 2008 drógu hjónin 964 milljóna króna tap sitt vegna sölu á hlutabréfum í Melrose frá 2,4 milljarða króna söluhagnaði er þau seldu bréf sín í Glitni. Með því lækkuðu þau þá upphæð sem greiða þurfti fjármagnstekjuskatt af niður í 1,5 milljarð króna. Ríkisskattstjóri taldi hjónunum ekki heimilt að draga tapið frá hagnaðinum og sendi þeim því endurálagningu. Hjónin kærðu það til yfirskattanefndar sem staðfesti ákvörðun ríkisskattstjóra og fóru þau því með málið fyrir dómstóla. Íslenska ríkið var sýknað af öllum kröfum og ber Einari og konu hans að greiða allan málskostnað.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira