Eldur var kveiktur á þremur stöðum í klæðningu á neðstu hæð í nýju turnbyggingunni við Smáralind í Kópavogi um fimm leytið í morgun.
Öryggisverðir á vegum Öryggismiðstöðvarinnar urðu eldsins varir og voru búnir að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang, en þá hafði talsverður reykur borist inn í húsið og tók drjúga stund að reykræsta rýmið.
Af öllum ummerkjum er ljóst að brennuvargur, eða vargar voru þarna á ferð en þeir forðuðu sér af vettvangi og rannsakar lögregla nú málið. Óverulegt tjón hlaust af íkveikjunni vegna þess hversu öruyggisverðir brugðust skjótt við.
Reynt að kveikja í turninum við Smáralind
Gissur Sigurðsson skrifar

Fleiri fréttir
