Kosningaréttur kvenna 99 ára Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir skrifar 19. júní 2014 07:00 Í dag eru 99 ár frá því að Kristján 10. Danakonungur og Einar Árnason, ráðherra Íslands, undirrituðu stjórnarskrárbreytingu þar sem íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Stórafmæli kosningaréttarins er því á næsta ári og verður aldarafmælisins minnst á margvíslegan hátt allt árið. Málþing verða haldin og alþjóðleg ráðstefna verður í október á afmælisárinu. Á vegum Landsbókasafnsins og Þjóðminjasafnsins verða settar upp sýningar um sögu kosningaréttar í máli og myndum í samstarfi við afmælisnefndina, sem kosin var síðastliðið haust. Hátíðarhöld verða á Austurvelli 19. júní eins og 100 árum áður þegar konur fögnuðu fengnum lýðréttindum og baráttukonurnar Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Ingibjörg H. Bjarnason, sem varð fyrst kvenna til að setjast á þing, héldu merkar ræður. Sinfóníuhljómsveit Íslands mun minnast tímamótanna með sérstökum tónleikum 11. júní 2015. Efnisskráin er sérlega glæsileg með tónverkum kvenna og konum í lykilhlutverkum. Menningar- og menntastofnanir eru hvattar til að haga verkefnavali og námskrá í tengslum við afmælisárið og verða verkefni fyrir nemendur og kennara aðgengileg á vefnum. Afmælisnefndin hvetur sem flesta til að efna til verkefna og viðburða til að minnast aldarafmælisins á næsta ári og að menn sýni frumkvæði í verkefnavali. Það er mikilvægt að sveitarfélög, menningarnefndir, kvenfélög, femínistar og önnur félagasamtök starfi saman á smærri stöðum og efni til viðburða í tilefni afmælisins og minnist frumkvöðlanna. Það er von okkar að umfjöllun um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á næsta ári, jafnrétti kynjanna, kvennabaráttuna, kvenréttindi og kosningaréttinn verði lífleg og fjölbreytt allt árið 2015. Við hvetjum sem flesta til að fjalla um aldarafmæli þessara mikilvægu réttinda og blásum til nýrrar sóknar í jafnréttismálum. 19. júní fyrir 99 árum markaði mikilvægan áfanga í átt til jafnrar þátttöku kynjanna í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku í samfélaginu og þess að bæði karlar og konur væru með þar sem ráðum er ráðið. Í því felast grundvallarmannréttindi. Stöndum vörð um þau og nýtum kosningaréttinn þegar hann býðst. Til hamingju með daginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Í dag eru 99 ár frá því að Kristján 10. Danakonungur og Einar Árnason, ráðherra Íslands, undirrituðu stjórnarskrárbreytingu þar sem íslenskar konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Stórafmæli kosningaréttarins er því á næsta ári og verður aldarafmælisins minnst á margvíslegan hátt allt árið. Málþing verða haldin og alþjóðleg ráðstefna verður í október á afmælisárinu. Á vegum Landsbókasafnsins og Þjóðminjasafnsins verða settar upp sýningar um sögu kosningaréttar í máli og myndum í samstarfi við afmælisnefndina, sem kosin var síðastliðið haust. Hátíðarhöld verða á Austurvelli 19. júní eins og 100 árum áður þegar konur fögnuðu fengnum lýðréttindum og baráttukonurnar Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Ingibjörg H. Bjarnason, sem varð fyrst kvenna til að setjast á þing, héldu merkar ræður. Sinfóníuhljómsveit Íslands mun minnast tímamótanna með sérstökum tónleikum 11. júní 2015. Efnisskráin er sérlega glæsileg með tónverkum kvenna og konum í lykilhlutverkum. Menningar- og menntastofnanir eru hvattar til að haga verkefnavali og námskrá í tengslum við afmælisárið og verða verkefni fyrir nemendur og kennara aðgengileg á vefnum. Afmælisnefndin hvetur sem flesta til að efna til verkefna og viðburða til að minnast aldarafmælisins á næsta ári og að menn sýni frumkvæði í verkefnavali. Það er mikilvægt að sveitarfélög, menningarnefndir, kvenfélög, femínistar og önnur félagasamtök starfi saman á smærri stöðum og efni til viðburða í tilefni afmælisins og minnist frumkvöðlanna. Það er von okkar að umfjöllun um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á næsta ári, jafnrétti kynjanna, kvennabaráttuna, kvenréttindi og kosningaréttinn verði lífleg og fjölbreytt allt árið 2015. Við hvetjum sem flesta til að fjalla um aldarafmæli þessara mikilvægu réttinda og blásum til nýrrar sóknar í jafnréttismálum. 19. júní fyrir 99 árum markaði mikilvægan áfanga í átt til jafnrar þátttöku kynjanna í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku í samfélaginu og þess að bæði karlar og konur væru með þar sem ráðum er ráðið. Í því felast grundvallarmannréttindi. Stöndum vörð um þau og nýtum kosningaréttinn þegar hann býðst. Til hamingju með daginn.
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar