Stuðið var baksviðs - sjáðu myndirnar Ellý Ármanns 3. apríl 2014 14:15 Ísak Freyr sá um förðunina á Yulia tískusýningu Hildar í Hafnarhúsinu á Hönnunarmars.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hafnarhúsinu á sýningu Hildar Yeoman. Förðunarfræðingurinn, Ísak Freyr, sem búsettur er í London, kom sérstaklega til landsins til að stjórna förðunarteymi tískusýningarinnar.Ísak Freyr sá alfarið um förðun fyrirsætanna með vörum frá L'Oreal þar sem hann lagði áherslu á augun. Aðspurður segir Ísak að hann og Hildur hafi ákveðið að vera ekki með jafn tryllta förðun og oft áður en þau tvö vinna mikið saman. Hildur Yeoman baksviðs. Yulia er nýjasta lína Hildar þar sem ólíkum efnum er blandað saman og skemmtileg og lífleg print eru notuð. Í sýningunni voru einnig notaðir sokkar frá ítalska sokkabuxnamerkinu Oroblu.Förðunin sem Ísak hannaði er mjög hátískuleg. Í aðalhlutverki voru svartur eyeliner og svartur augnskuggi. Ísak mótaði augnförðunina með svörtu förðunarvörunum og setti loks fallegan sanseraðan bláan augnskugga yfir hana og kremaðan silfraðan augnskugga í augnkróknana.Þegar fyrirsæturnar lokuðu augunum var útlitið eins og heiðskír næturhiminn. Til að gera augnhárin áberandi notaði Ísak nýja ofurþykkingarmaskarann Miss Manga frá L'Oreal. Húðin var í aukahlutverki að sögn Ísaks en til að gefa henni fallega áferð og heilbrigðan ljóma notaði hann nýja Infallible farðann frá L'Oreal. Að lokum setti hann örlitla skyggingu undir kinnbeinin og smá ljóma yfir þau. Förðunin fullkomnaði heildarútlit fyrirsætanna fyrir sýningu Hildar eins og sjá má.Yulia, yfirskrift sýningarinnar, er sprottin út frá sögu fjölskyldu Hildar, þar sem frelsi einstaklingsins til að hafna borgaralegum lífsgildum var grunnþema sýningarinnar.Ísak hefur á stuttum tíma skapað sér stórt nafn í förðunarheiminum og tekið að sér mörg stór verkefni. Smelltu á efstu mynd til að skoða albúmið (128 myndir) í heild sinni. Post by Lífið á Visir.is.
HönnunarMars Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira