Flugumsjónarmenn boða til verkfalls í næstu viku Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. september 2014 14:25 VÍSIR/PJETUR
Félag Flugumsjónarmanna á Íslandi hefur boðað til verkfalls fimmtudaginn 11. september næstkomandi fyrir hönd félagsmanna sinna sem starfa hjá Icelandair. Þetta staðfestir Valdimar Pétursson, formaður samninganefndar flugumsjónarmanna, í samtali við Vísi í dag. Verkfallsboðunin kveður á um sex tímabundin verkföll. Þau eru:11. september frá klukkan 07:00 til 19:00 14. september frá klukkan 07:00 til 19:00 18. september frá klukkan 07:00 til 19:00 20. september frá klukkan 07:00 til 19:00 25. september frá klukkan 07:00 til 07:00 28. september frá klukkan 07:00 til 07:00 Verkfallsboðunin var send inn á mánudag og að sögn Valdimars fara félagsmenn fram á svipaðar launahækkanir og öðrum stéttum hafa hlotnast í deilum sínum við flugfélagið það sem af er ári. Flugumsjónarmenn fara þannig fram á rúmlega tveggja prósenta launahækkun á launatöflu auk annarra bættra starfskjara. Sem dæmi má nefna að samningurinn sem flugmenn Icelandair undirrituðu í maí, er gildir til 30. september næstkomandi, kveður á um átta prósenta launahækkun á ársgrundvelli, þegar öll fríðindi eru tekin í reikninginn. Flugumsjónarmenn sinna margvíslegum verkefnum fyrir flugfélög. Þeir sjá til að mynda um alla leiðaútreikninga fyrir flug félagsins, reikna út eldsneytisþörf og skipuleggja flug vélanna. Þeir sækja einnig um lendingartíma, leyfi og undirbúa þannig allar flugferðir Icelandair. Alls starfa níu flugumsjónarmenn hjá Icelandair.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira