Það hellirignir hjá Birni Braga Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. janúar 2014 11:00 Björn Bragi Arnarsson hefur í nógu að snúast á næstunni. fréttablaðið/stefán „
Eins og Kaninn segir: Þegar það rignir, þá hellirignir,“ segir Björn Bragi Arnarsson fjölmiðlamaður sem hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hann mun, ásamt félögum sínum í grínhópnum Mið-Íslandi, frumsýna uppistand í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. Auk þess stýrir Björn Bragi EM-stofunni, sem fjallar um Evrópumótið í handknattleik og verður spyrill í Gettu betur sem hefst á Rás 2 um helgina. Sem sagt, nóg að gera hjá Birni. „Maður þarf að vera skipulagður og stýra tíma sínum vel. Það er svolítið síðan ég tók þessi verkefni að mér og hef því haft tíma til að undirbúa mig. Mér finnst gott að hafa nóg að gera,“ útskýrir Björn Bragi. Verkefnin eru öll ólík í eðli sínu. „Í EM-stofunni erum við að kryfja leiki, spá í spilin og þess háttar. Að vera spyrill í Gettu betur er vandasamt verk, maður þarf að geta slegið á létta strengi með áhorfendum en samt standa sig gagnvart keppendum og reyna að létta á þeim stressið. Uppistandið er svo auðvitað allt öðru vísi,“ útskýrir Björn. Sýning Mið-Íslands í fyrra sló í gegn en nú fara þeir félagarnir af stað með glænýtt uppistand. „Við fengum yfir tíu þúsund gesti í Þjóðleikhúskjallarann í fyrra. Nú snúum við aftur með nýtt efni sem hefur aldrei heyrst áður.“ Strax er uppselt á sýngarnar sem hópurinn heldur um helgina. „Viðtökurnar hafa verið frábærar. Sýningin í fyrra gekk vonum framar og þessi sýning fer vel af stað,“ segir Björn.
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira