Hvað má fá fyrir rúmar 200 krónur? Gylfi Magnússon skrifar 21. október 2014 07:00 Undanfarnar vikur hefur það orðið vinsæll samkvæmisleikur að reyna að reikna út hve margar krónur meðalmáltíð kostar að mati höfunda fjárlagafrumvarpsins og hvað kaupa má fyrir þá upphæð. Þótt slíkir talnaleikir geti haft visst skemmtigildi mega þeir ekki verða til þess að draga athyglina frá aðalatriði málsins. Hér er verið að takast á um grundvallaratriði í uppbyggingu skattkerfisins, hvernig byrðunum er skipt milli þjóðfélagshópa. Hvernig svo sem menn vilja svara þeirri spurningu ættu allir að geta verið sammála um að svarið verður að byggja á réttum forsendum. Það er því miður ekki staðan nú. Það sást m.a. þegar fjárlögin voru kynnt með dæmi um fjögurra manna fjölskyldu sem notar að því er virðist 2.475 krónur á dag í matvæli og drykkjarföng. Það gerir rúmar 200 krónur á máltíð á mann. Það er fráleit forsenda. Þótt kannski megi einhvers staðar finna slíka fjölskyldu er hún ekki dæmigerð. Dæmið gefur mjög ranga mynd af áhrifum þessarar skattahækkunar. Jafnframt hefur því ítrekað verið haldið fram í umræðunni um hækkun virðisaukaskatts á matvæli að hún kom nokkuð jafnt niður á hinum ýmsu tekjuhópum. Þeir verji sem sagt allir svipuðu hlutfalli af tekjum sínum í matvæli og drykkjarföng. Það er rangt. Heilbrigð skynsemi ein og sér ætti að duga til að hafna svo fjarstæðukenndri fullyrðingu. Dugi það ekki til eru hagtölur mjög skýrar. Fólk með lágar tekjur kaupir ódýrari mat en þeir sem eru með hæstar tekjur en þeir tekjulægri verja mun hærri hluta ráðstöfunartekna sinna í slíkar nauðsynjar.Meiri ójöfnuður Hagstofan birtir aðgengilegar tölur um þetta sem byggja á neyslukönnunum. M.a. má sjá tölur um neyslu þar sem þjóðinni er skipt í fjóra hluta eftir tekjum. Árið 2012 voru útgjöld vegna kaupa á matvælum og drykkjarföngum hjá þeim Íslendingum sem hafa lægstar tekjur nær fjórðungi hærra hlutfall af öllum útgjöldum en hjá þeim sem er með hæstar tekjur. Sem hlutfall af tekjum var munurinn enn meiri. Þeir tekjulægstu notuðu nær helmingi hærra hlutfall tekna sinna til kaupa á matvælum og drykkjarföngum en þeir tekjuhæstu. Þess vegna þýðir aukin skattlagning matvæla meiri ójöfnuð í samfélaginu að öðru jöfnu. Lækkanir á gjöldum á aðrar vörur sem eiga að koma á móti duga þeim tekjulægstu skammt, af svipuðum ástæðum. Þær nýtast best þeim sem eru með háar tekjur en síður þeim sem eru með lágar tekjur. Þannig eru t.d. útgjöld vegna kaupa raftækja, sem eiga að lækka, meira en helmingi hærra hlutfall heildarútgjalda hjá tekjuhæsta hópnum en þeim tekjulægsta. Vilji menn nota ríkisfjármálin til að draga úr misskiptingu í samfélaginu er það auðvitað hægt. Það er hægt að gera með lækkun gjalda á nauðsynjavörur. Aðrar aðgerðir til tekjujöfnunar gætu jafnvel verið enn skilvirkari. T.d. hækkun persónufrádráttar í tekjuskattskerfinu, barnabóta, ellilífeyris eða örorkubóta. Hækkun skatta á mat hefur þveröfug áhrif. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir Skoðun Nú vandast valið Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Halldór 18.05.2024 Halldór Að sameina frekar en sundra Fríða Björk Ingvarsdóttir Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson Skoðun Halla Hrund - ein af okkur Hjálmar Gíslason Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Halla Hrund - ein af okkur Hjálmar Gíslason skrifar Skoðun Að sameina frekar en sundra Fríða Björk Ingvarsdóttir skrifar Skoðun Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir skrifar Skoðun Hvaða eiginleika þarf forseti að hafa? Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Þegar ég heyri nafnið Katrín Jakobsdóttir Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Í framhaldi af viðtali við Helgu Þórisdóttur Kári Stefánsson skrifar Skoðun Góð gildi og staðfesta Höllu Hrundar Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Halla Hrund eða Katrín? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Til áréttingar Kári Stefánsson skrifar Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson skrifar Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir skrifar Skoðun Ég kýs Helgu Þórisdóttur Gerður Rún Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Sjá meira
Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir skrifar
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Þegar orðið einelti er gjaldfellt – Til fylgjenda Katrínar Jakobsdóttur Kolbrá Höskuldsdóttir Skoðun
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun